Annar sigur Cleveland í röð | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júní 2015 07:46 James hefur verið magnaður í úrslitaeinvíginu. vísir/getty
Cleveland Cavaliers er komið í 2-1 í einvíginu gegn Golden State Warriors eftir fimm stiga sigur, 96-91, í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í nótt. LeBron James átti enn einn stórleikinn í liði Cleveland en hann skoraði 40 stig, tók 12 fráköst, gaf átta stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum. Cleveland var allan tímann yfir í leiknum í nótt og náðu mest 20 stiga forystu í 3. leikhluta. Stephen Curry hitnaði svo um munaði í 4. leikhluta þar sem hann skoraði 17 stig. Curry minnkaði muninn í þrjú stig, 94-91, þegar tæpar 19 sekúndur voru eftir en nær komust stríðsmennirnir ekki. Liðin mætast í fjórða sinn aðfaranótt föstudags en ljóst er að Cleveland kemst í ansi vænlega stöðu með sigri. Fáir áttu von á miklu frá Cleveland eftir að leikstjórnandinn Kyrie Irving meiddist í fyrsta leiknum gegn Golden State en leikmenn Cleveland hafa blásið á allar hrakspár. Matthew Dellavedova, sem hefur spilað stærri rullu í fjarveru Irvings, var með 20 stig í liði Cleveland í nótt og þeir J.R. Smith og Tristan Thompson gerðu 10 stig hvor. Sá síðarnefndi tók einnig 13 fráköst. Curry, sem hitti mun betur í nótt en í öðrum leiknum, var stigahæstur í liði Golden State með 27 stig en Andre Iguodala kom næstur með 15 stig.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira