Papco dæmt fyrir ólögmæta uppsögn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. nóvember 2015 08:03 Papco rak starfsmanninn meðal annars vegna þess að hann gaf pizzustað pizzukassa. vísir/getty
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Papco hf. til að greiða fyrrverandi starfsmanni fyrirtækisins tæpar 2 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar í ágúst 2014. Um er að ræða laun sem maðurinn átti inni hjá Papco vegna uppsagnarinnar auk desemberuppbótar, orlofs og orlofsuppbótar. Fram kemur í dómnum að manninum hafi verið sagt upp fyrirvaralaust en í uppsagnarbréfi var ástæða uppsagnarinnar sögð brot á trúnaðarskyldu. Í greinargerð Papco voru talin upp nokkur atvik sem urðu til þess að manninum var sagt upp. Gaf vörur til að koma á viðskiptasamböndumÞar á meðal var sala og afhending til veitingastaðarins Obladí án þess að reikningur hefði verið gerður, þá átti maðurinn að hafa gefið vörur nokkrum sinnum til fyrirtækja, meðal annars pizzukassa til pizzustaðar, auk þess sem Papco taldi að hann hygðist stofna sitt eigið fyrirtæki í samkeppni við Papco. Að mati dómsins gáfu ofangreind atvik Papco ekki heimild til að segja manninum fyrirvaralaust upp störfum. Hann hafi meðal annars skýrt það fyrir dómi að hann gefið vörur, þar á meðal pizzukassana, til að koma á viðskiptasamböndum fyrir hönd Papco en fyrirtækið hrakti ekki þessar skýringar fyrir dómi. Þá metur dómurinn það sem svo að fyrirtækið hafi dregið of miklar ályktanir þegar talið var að starfsmaðurinn hygðist stofna sitt eigið fyrirtæki í samkeppni við Papco. Það hefði því ekki gefið Papco heimild til að reka manninn. Papco var því dæmt til að greiða manninum þau laun sem hann átti inni hjá fyrirtækinu í samræmi við uppsagnarfrest hans en miskabótakröfu hans var hafnað. Dóm héraðsdóms má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira