Fjöldi þingmanna fyrirsjáanlega í atvinnuleit Jakob Bjarnar skrifar 3. nóvember 2015 09:21 Rúmlega einn þriðji þingmanna ætti að fara að huga að nýjum tækifærum á vinnumarkaði, en þeim að vera á Alþingi.
Ásmundur Einar, Elín Hirst, Helgi Hjörvar og Guðmundur Steingrímsson eru meðal þeirra þingmanna sem ættu að huga að nýju Curriculum Vitae, stofna LinkedIn-reikning og setja sig í samband við ráðningarskrifstofur. Ef niðurstaðan í næstu kosningum verður samkvæmt því sem sýndi sig í nýrri Gallupkönnun fjúka af þingi 23 þingmenn, sem liðlega einn þriðji alls þingmannaliðsins. Engin smávægileg breyting og víst að reyna mun mjög á hið meinta samtryggingarkerfi stjórnmálamanna. Spyrja má: Hversu lengi getur utanríkisþjónustan tekið við uppgjafa pólitíkusum?Gunnar Smári reiknaði, og reiknaði svo meira og niðurstaðan er sú að alger uppstokkun verður í þingmannaliðinu.Gunnar Smári Egilsson blaðamaður er áhugamaður um kosningar, kosningakerfið og stærðfræðingur ágætur. Hann bauð vinum sínum á Facebook upp á athyglisverðan samkvæmisleik í gær; samantekt á breytingum á þingmannaliði í ljósi nýrrar skoðanakönnunar.Ýmsir eðlilegir fyrirvarar Gunnar Smári veitti Vísi góðfúslegt leyfi til að vitna í samantekt sína, en vissulega verður að gera ýmsa fyrirvara. Aðferðin sem hann notar er að deila hlutfalli hvers flokks úr síðustu könnun Gallup í heildaratkvæðamagn 2013 og deila því svo út eftir því hvernig atkvæði hvers flokks skiptust milli kjördæma í þeim kosningum. Og til þess ber að líta að framboðslistarnir eru þeir sömu, fyrir utan þá sem hafa dáið eða hætt á þingi.Framsóknarmenn hafa verið fyrirferðarmiklir á þingi þetta kjörtímabilið og ættu að njóta stundarinnar meðan gefst.Spurningin er sem sagt þessi: „Hverjir myndu taka sæti á Alþingi Íslendinga ef niðurstöður kosninga yrðu samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup, atkvæði flokkanna skiptust milli kjördæma með sama hætti og í síðustu kosningum og flokkarnir biðu fram óbreytta lista frá kosningunum 2013.“ Gunnar Smári segir að ekki sé líklegt að þetta gangi eftir, en þó gefur þetta ágæta mynd af stöðunni eins og hún blasir við á hinum flokkapólitíska landslagi. Píratarnir hafa verið að mælast með himinskautum í skoðanakönnunum og virðist þar ekkert lát á. Þetta þýðir að þeir verða fleiri á næsta þingi en þrír. Sem jú, þýðir að aðrir verða að víkja.Framsóknarmenn fjúka af þingiFjöldinn allur af nýjum þingmönnum kemur inn, en eðli málsins eru þeir ekki eins þekktir og þeir sem ættu að velta fyrir sér því að uppfæra ferilsskrá sína og jafnvel skjóta henni inná næstu atvinnumiðlun. Það er til marks um hversu nærri er gengið þingmannaliðinu að meira að segja einn ráðherra flokksins dettur af þingi. Sigrún Magnúsdóttir er reyndar ekkert unglamb og hún hefur sennilega engar áhyggjur af ástandinu á vinnumarkaði; ellilífeyririnn er vel tryggður.Þessir Framsóknarmenn fjúka af þingi og munar um minna.Mest breyting verður á þingmannaliði Framsóknarflokksins, þingmannaliðið verður vart svipur hjá sjón: Þeir sem falla af þingi eru Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Höskuldur Þórhallsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson, Willum Þór Þórsson, Þorsteinn Sæmundsson, Karl Garðarsson og Sigrún Magnúsdóttir. Eins og sjá má eru þarna ýmsir þungavigtarmenn flokksins sem þurfa að fara að horfa í kringum sig eftir nýjum atvinnutækifærum; ráðherra og þingflokksformaður. Sagan kennir okkur að Framsóknarflokkurinn hefur haft lag á að rísa úr öskustónni á síðustu stundu; þeir koma yfirleitt betur út úr kosningum en skoðanakannanir gefa til kynna. En, hér er ekki um það spurt.Þingflokkur Bjartrar framtíðar þurrkast út. Þessir einstaklingar ættu ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því lengi enn að þurfa að segja: Hæstvirtur forseti...Þingmannalið Bjartrar framtíðar hverfurÞótt Björt framtíð tapi minna fylgi en Framsókn þá þurrkast þingflokkurinn út þar sem flokkurinn nær ekki yfir 5 prósenta markið. Óttarr Proppé, Guðmundur Steingrímsson, Róbert Marshall, Brynhildur Pétursdóttir, Björt Ólafsdóttir og Páll Valur Björnsson falla öll af þingi. Sjálfstæðismenn tapa tveimur mönnum, fara út 19 þingmönnum í 17. Elín Hirst og Birgir Ármannsson falla af þingi en aðrir halda sætum sínum. Samfylkingin tapar líka tveimur mönnum, fara úr 9 þingmönnum í 7. Helgi Hjörvar og Valgerður Bjarnadóttir falla af þingi. Samfylkingin hefur verið í frjálsu falli í skoðanakönnunum en ástæðan fyrir því að þeir eru ekki fleiri er einfaldlega sú að þeir riðu ekki feitum hesti frá síðustu kosningum; það er ekki af miklu að taka.Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur sem síst þarf að súpa seyðið af uppgangi Pírata, en Elín og Birgir þurfa þó að fara sem og Samfylkingarfólkið Helgi Hjörvar og Valgerður Bjarnadóttir.Samantekt Gunnars Smára öllEkki nokkur áhugamaður um íslensk stjórnmál ætti að láta ítarlega samantekt Gunnars Smára fram hjá sér fara. Ljóst er að fjöldi þekktra þingmanna fjúka af þingi og nýjir koma inn. Líkast til margir sem aldrei hafa svo mikið sem velt fyrir sér þeim möguleika að þingmennska eigi hugsanlega fyrir þeim að liggja.Norðurland vestraÞingmenn Norðurlands vestra yrðu: Einar K. Guðfinnsson (D), Hildur Sif Thorarensen (P), Gunnar Bragi Sveinsson (B), Haraldur Benediktsson (D), Herbert Snorrason (P), Ólína Þorvarðardóttir (S), Lilja Rafney Magnúsdóttir og uppbótarþingmaðurinn Guðrún Ágústa Þórdísardóttir (P). Ásmundur Einar Daðason (B), Elsa Lára Arnardóttir (B) og Jóhanna María Sigmundsdóttir (B) féllu af þingi.Þrír Píratar inn og þrír Framsóknarmenn út á Norðurlandi vestra. Engin breyting á hlutfalli kynja; fjórir karlar og fjórar konur.Þingmenn Norðurlands eystra yrðu: Aðalheiður Ámundadóttir (P), Kristján Þór Júlíusson (D), Steingrímur J. Sigfússon (VG), Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B), Þórgnýr Thoroddsen (P), Valgerður Gunnarsdóttir (D), Kristján Möller (S), Bjarkey Gunnarsdóttir (VG), Helgi Laxdal (P) og uppbótarþingmaðurinn Edward H. Huijbens (VG). Þessi falla af þingi: Höskuldur Þórhallsson (B), Líneik Anna Sævarsdóttir (B), Þórunn Egilsdóttir (B) og Brynhildur Pétursdóttir (BF).Þrír Framsóknarmenn og einn frá Bjarti framtíð falla út en þrír Píratar og einn frá VG koma inn í staðinn. Tveimur fleiri konur falla út en koma inn. Á eftir verða aðeins þrjár konur á móti sjö körlum í Norðurlandi eystra.SuðurkjördæmiÞingmenn Suðurkjördæmis yrðu: Smári McCarthy (P), Ragnheiður Elín Árnadóttir (D), Halldór Berg Harðarson (P), Sigurður Ingi Jóhannsson (B), Unnur Brá Konráðsdóttir (D), Björn Þór Jóhannesson (P), Ásmundur Friðriksson (D), Svafar Helgason (P), Oddný Harðardóttir (S) og uppbótarþingmaðurinn Vilhjálmur Árnason (D). Þau sem missa þingsæti sitt eru Silja Dögg Gunnarsdóttir (B), Páll Jóhann Pálsson (B), Haraldur Einarsson (B) og Páll Valur Björnsson (BF).Þrír framsóknarmenn og einn frá Bjartri framtíð detta út en fjórir Píratar koma inn í staðinn. Allir Píratarnir eru karlar og því fækkar konum um eina. Frá Suðurlandi koma sjö karlar en aðeins þrjár konur.SuðvesturkjördæmiÞingmenn Suðvesturkjördæmis yrðu: Birgitta Jónsdóttir (P), Bjarni Benediktsson (D), Björn Leví Gunnarsson (P), Ragnheiður Ríkarðsdóttir (D), Hákon Einar Júlíusson (P), Árni Páll Árnason (S), Jón Gunnarsson (D), Árni Þór Þorgeirsson (P), Eygló Harðardóttir (B), Ögmundur Jónasson (VG), Vilhjálmur Bjarnason (D) og uppbótarþingmennirnir Berglind Ósk Bergsdóttir (P) og Katrín Júlíusdóttir (S).Þau sem falla af þingi eru Willum Þór Þórsson (B), Guðmundur Steingrímsson (BF), Þorsteinn Sæmundsson (B) og Elín Hirst (D). Tveir Framsóknarmenn, einn frá Bjartri framtíð og einn sjálfstæðismaður fara út en fjórir Píratar koma inn í kraganum. Óbreytt hlutfall kynja: fimm konur og átta karlar.Reykjavík suðurÞingmenn Reykjavíkur suður yrðu: Ásta Helgadóttir (P), Hanna Birna Kristjánsdóttir (D), Sigurbjörg Erla Egilsdóttir (P), Sigríður Fossberg Thorlacius (P), Svandís Svavarsdóttir (VG), Guðlaugur Þór Þórðarson (D), Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S), Arnaldur Sigurðsson (P), Birkir Fannar Einarsson (P) og uppbótarþingmennirnir Vigdís Hauksdóttir (B) og Sigríður Á. Andersen (D).Þau sem falla af þingi eru Róbert Marshall (BF), Karl Garðarsson (B), Helgi Hjörvar (S) og Óttarr Proppé (BF). Tveir þingmenn Bjartrar framtíðar, einn frá Framsókn og einn frá Samfylkingunni víkja fyrir fjórum Pírötum. Konum fjölgar hér um tvær. Frá Reykjavíkur suður koma átta konur en aðeins þrír karlar.Reykjavík norðurÞingmenn Reykjavíkur norður yrðu: Helgi Hrafn Gunnarsson (P), Halldóra Mogensen (P), Illugi Gunnarsson (D), Katrín Jakobsdóttir (VG), Bjarni Rúnar Einarsson (P), Salvör Kristjana Gissurardóttir (P), Össur Skarphéðinsson (S), Brynjar Níelsson (D), Þórður Sveinsson (P) og uppbótarþingmennirnir Frosti Sigurjónsson (B) og Steinunn Þóra Árnadóttir (VG).Þau sem falla af þingi eru Björt Ólafsdóttir (BF), Sigrún Magnúsdóttir (B), Birgir Ármannsson (D) og Valgerður Bjarnadóttir (S). Út fer einn frá hverjum; Bjartri framtíð, Sjálfstæðisflokki, Framsókn og Samfylkingunni fyrir fjóra Pírata. Konum fækkar um eina og eftir standa sjö karlar og fjórar konur.Breytingar mestar hjá PírötumBreytingar á þingliði flokkanna verða mestar hjá Pírötum. Þingflokkurinn fer úr þremur þingmönnum í 25 þingmenn. Birgitta, Helgi Hrafn og Ásta Helgadóttir halda sætum sínum en ný á þingi yrðu (miðað við framboðslista 2013):Hildur Sif Thorarensen, Herbert Snorrason og Guðrún Ágústa Þórdísardóttir frá Norðurlandi vestra. Aðalheiður Ámundadóttir, Þórgnýr Thoroddsen og Helgi Laxdal frá Norðurlandi eystra. Smári McCarthy, Halldór Berg Harðarson, Björn Þór Jóhannesson og Svafar Helgason af Suðurlandi. Björn Leví Gunnarsson, Hákon Einar Júlíusson, Árni Þór Þorgeirsson og Berglind Ósk Bergsdóttir úr kraganum. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Sigríður Fossberg Thorlacius, Arnaldur Sigurðsson og Birkir Fannar Einarsson úr Reykjavík suður. Og Halldóra Mogensen, Bjarni Rúnar Einarsson, Salvör Kristjana Gissurardóttir og Þórður Sveinsson úr Reykjavík suður.Framsókn tapar mestuSá flokkur sem tapar mestu er Framsókn. Flokkurinn hefur nú 19 þingmenn en fengi aðeins sex, missti 13 þingmenn.Þingflokkur Framsóknar yrði Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Eygló Harðardóttir, Vigdís Hauksdóttir og Frosti Sigurjónsson — einn framsóknarmaður úr hverju kjördæmi.Þeir sem falla af þingi eru Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Höskuldur Þórhallsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson, Willum Þór Þórsson, Þorsteinn Sæmundsson, Karl Garðarsson og Sigrún Magnúsdóttir.Björt framtíð þurrkast útÞótt Björt framtíð tapi minna fylgi en Framsókn þá þurrkast þingflokkurinn út þar sem flokkurinn nær ekki yfir 5% markið. Óttarr Proppé, Guðmundur Steingrímsson, Róbert Marshall, Brynhildur Pétursdóttir, Björt Ólafsdóttir og Páll Valur Björnsson falla öll af þingi.Sjálfstæðismenn tapa tveimur mönnum, fara út 19 þingmönnum í 17. Elín Hirst og Birgir Ármannsson falla af þingi en aðrir halda sætum sínum.Samfylking tapar tveimurSamfylkingin tapar líka tveimur mönnum, fara úr 9 þingmönnum í 7. Helgi Hjörvar og Valgerður Bjarnadóttir falla af þingi.Vinstri hreyfingin – grænt framboð vinnur einn mann; fer úr sjö manna þingflokki í 8 þingmenn. Nýi þingmaðurinn kemur inn sem uppbótarþingmaður í Norðurlandi eystra og heitir Edward H. Huijbens. Það skal þó ítrekað að það nægir að hósta aðeins á þessar niðurstöður til að þessi þingmaður VG kæmi inn í einhverju allt öðru kjördæmi.Hér er smá samkvæmisleikur. Hverjir myndu taka sæti á Alþingi Íslendinga ef niðurstöður kosninga yrðu samkvæmt nýrri sko...Posted by Gunnar Smári Egilsson on 2. nóvember 2015
Mest lesið Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Innlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent Fleiri fréttir „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Sirkus hundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Sjá meira