Samþykkti ekki leiðréttinguna á réttum tíma en fær annað tækifæri Bjarki Ármannsson skrifar 3. nóvember 2015 22:33 Útreiknuð leiðrétting mannsins var rúmlega 1.3 milljónir króna. Vísir/Vilhelm
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að gefa manni sem samþykkti ekki fjárhæð leiðréttingu á verðtryggðu fasteignaláni sínu innan tiltekinna tímamarka kost á að samþykkja fjárhæðina að nýju. Maðurinn heldur því fram að hann hafi ekki fengið neina tilkynningu í pósti eða tölvupósti um það hvenær frestur hans til að samþykkja fjárhæðina og ráðstöfun hennar rynni út. Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðarnefndar um leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána, sem birtur var í síðasta mánuði. Málavextir eru þeir að maðurinn sótti um leiðréttingu ásamt fyrrverandi konu sinni þann 25. maí í fyrra og var honum tilkynnt um það þann 6. mars síðastliðinn að umsókn hans hefði verið skipt vegna breyttrar hjúskaparstöðu. Útreiknuð leiðrétting mannsins var rúmlega 1.3 milljónir króna og var sú fjárhæð birt honum þann 8. mars. Að því er segir í úrskurðinum lét ríkisskattstjóri manninn vita með tilkynningu þann 3. júní að frestur hans til að samþykkja leiðréttingarfjárhæðina rynni út þann 9. júní og að ekki væri unnt að fá þann frest framlengdan. Maðurinn segist þó ekki hafa fengið neina tilkynningu í pósti eða tölvupósti og segir að hann hafi ætlað að samþykkja leiðréttinguna eftir að fresturinn rann út. Virðist honum sem tilkynningar hafi verið sendar á tölvupóstfang fyrrverandi eiginkonu sinnar, þaðan sem umsókn um leiðréttingu var upphaflega send. Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að þann 26. september hafi embætti ríkisskattstjóra ákveðið að eigin frumkvæði að endurbirta niðurstöður útreikninga í máli mannsins og að gefa honum kost á að samþykkja að nýju innan þriggja mánaða frá birtingardegi. Ekki kemur fram í úrskurðinum hvort maðurinn hafi samþykkt fjárhæðina.
Tengdar fréttir Fékk rúma milljón í leiðréttingu en greiddi aldrei af láni Maðurinn fékk helming þeirrar leiðréttingarupphæðar sem féll til vegna láns þáverandi sambýliskonu hans. 9. júlí 2015 14:16 Fær leiðréttingu þrátt fyrir að hafa aldrei átt fasteignina Kaupmáli hjóna hefur ekkert gildi þegar kemur að leiðréttingu fasteignaveðlána. 24. september 2015 12:48 Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole Viðskipti innlent Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Sjá meira
Fékk rúma milljón í leiðréttingu en greiddi aldrei af láni Maðurinn fékk helming þeirrar leiðréttingarupphæðar sem féll til vegna láns þáverandi sambýliskonu hans. 9. júlí 2015 14:16
Fær leiðréttingu þrátt fyrir að hafa aldrei átt fasteignina Kaupmáli hjóna hefur ekkert gildi þegar kemur að leiðréttingu fasteignaveðlána. 24. september 2015 12:48