Viðskipti innlent

Setti Lucky records á sölu en er hættur við

ingvar haraldsson skrifar
Ingvar Geirsson, eigandi hljómplötuverslunarinnar Lucky records er hættur við að selja búðina.
Ingvar Geirsson, eigandi hljómplötuverslunarinnar Lucky records er hættur við að selja búðina. vísir/stefán
Ingvar Geirsson, eigandi hljómplötuverslunarinnar Lucky records er hættur við að selja búðina. Verslunin var auglýst til sölu í síðustu viku en var tekinn af sölu á föstudaginn. „Skífan var að loka og það var talað um að maður væri að fara að loka eða fara á hausinn svo ég ákvað að taka þetta út,“ segir Ingvar.

Ingvar segir rekstur Lucky Records alls ekki vera í samræmi við gengi Skífunnar. „Ég var að selja af því að það gengur vel og er vöxtur. Salan hjá okkur hefur aukist um 25 prósent,“ segir Ingvar.

„Það kom fram hjá Skífunni að nútímakúnninn vill meira úrval sem þeir gátu ekki boðið upp á. En hér er breiðara úrval en hefur nokkurn tímann verið í boði, klassík, 12 tommur, heimstónlist og fleira,“ segir Ingvar.

Ingvar  segir að að nokkrir aðilar hafi haft samband með það í huga að taka við rekstri búðarinnar en hann vill ekki selja búðina hverjum sem er. „Já, það voru nokkrir að skoða þetta en þetta var aðeins stór pakki fyrir þá því hún leynir á sér.“

Ingvar er bjartsýnn á framtíð Lucky Records sem staðsett er við Rauðarárstíg 10. „Það er mikið af útlendingum hérna og mikil uppbygging á svæðinu. Það kemur hótel hérna beint á móti og svo eru turnarnir og  fleiri hundruð stúdentaíbúð hérna. Það er svo margt að gerast hérna,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Skífan kaupir Heimkaup.is

Framkvæmdastjóri segir söluna fara fram á netinu í sífellt meira mæli og viðskiptavinir vilji geta verslað sínar vörur í rólegheitum úr þægindum heimilisins.

Verslunum Skífunnar lokað

Eigandi verslunarinnar segir ekki lengur unnt að þjóna kvikmynda- og tónlistaráhugamenn sómasamlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×