Finnur ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2015 13:04 Finnur Ingimarsson er líffræðingur.
Finnur Ingimarsson líffræðingur hefur verið ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs. þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ en alls 14 sóttu um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar í mars síðastliðnum. Einn dró umsókn sína til baka. Finnur var talinn hæfastur umsækjenda til að gegna starfinu. Finnur er með B.Sc. próf í líffræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.hon. í líffræði frá sama skóla. Finnur hefur starfað við Náttúrufræðistofu Kópavogs frá árinu 1993 og hefur á þeim tíma tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd rannsóknarverkefna sem Náttúrufræðistofan hefur tekið að sér. Hann hefur einnig haft yfirumsjón með móttöku og leiðsögn hópa um náttúrugripasafn Náttúrufræðistofunnar en safnið er eina náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu sem opið er almenningi. Hundruð skólabarna sækja safnið heim á ári hverju. Síðasta eina og hálfa árið hefur Finnur verið settur forstöðumaður Náttúrufræðistofunnar en starfinu gegndi áður Hilmar J. Malmquist sem nú er forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands. Náttúrufræðistofa Kópavogs er í sama húsnæði og Bókasafn Kópavogs og tilheyrir Listhúsi Kópavogsbæjar en þar undir falla einnig Gerðarsafn, Salurinn, Héraðsskjalasafn Kópavogs og Tónlistarsafn Íslands. Náttúrufræðistofa Kópavogs starfar samkvæmt menningarstefnu Kópavogsbæjar.
Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira