Var fyrirliði skólaliðs í Columbia-háskóla JÓN HÁKON HALLDÓRSSON skrifar 29. júlí 2015 12:00 Eva Sóley spilaði knattspyrnu þegar hún var yngri, en í dag hleypur hún, gengur og stundar jóga. fréttablaðið/ernir
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir hóf störf sem fjármálastjóri Advania í byrjun mánaðar. Hún hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu. Var forstöðumaður á fjármálasviði hjá Össuri, en starfaði áður lengst af hjá Kaupþingi, síðast sem fjármálastjóri frá 2009-2011. Einnig hefur hún verið varaformaður bankaráðs Landsbankans frá árinu 2013. Þá á hún fjárfestingafélagið Íscap með vini sínum, Steinari Þór Guðgeirssyni. Eva Sóley segist hafa ákveðið að stökkva á tækifærið hjá Advania, þótt starfið hjá Össuri hafi verið mjög áhugavert. „Þetta er spennandi fyrirtæki þar sem er mikið fram undan. Það er stefnt á markað á næstu árum og mikið að gerast hjá félaginu. Þannig að mér fannst þetta vera áhugaverð áskorun,“ segir Eva við Markaðinn. Ólíkt mörgum fjármálastjórum, er Eva ekki viðskiptafræðingur að mennt. „Ég tók bæði BS og MS í fjármálaverkfræði í Columbia University í New York og var með hagfræði sem aukagrein. Ég flutti svo strax heim eftir nám og fór að vinna hjá Kaupþingi þar sem ég hafði verið í sumarstarfi á meðan ég var í náminu úti,“ segir Eva Sóley, en hún bjó í New York á árunum 2001-2006. Eva spilaði mikið fótbolta á sínum yngri árum og það gaf henni færi á skólastyrk þegar hún fór til New York. Hún lætur mjög vel af dvölinni þar: „Það er náttúrlega bara eins og atvinnumennska fyrir kvenmann að komast út á skólastyrk og fá tækifæri til að læra í svona virtum skóla. Þannig að með náminu spilaði ég með fótboltaliðinu og var fyrirliði þess lengst af.“ Áður en Eva fór til New York spilaði hún fótbolta hér heima með Breiðabliki. Hún segist enn spila fótbolta af og til. „Annars hef ég meira verið í að ganga, hlaupa og í jóga síðastliðin ár. Ég á það til að meiðast þegar ég spila fótbolta, eins og vill oft verða,“ segir hún. Þá gekk hún yfir Fimmvörðuháls um helgina í góðra vina hópi. „Það var svolítið mikill snjór á þessari leið, mun meiri en við bjuggumst við,“ segir hún, en lætur annars vel af göngunni. Eva skellti sér til New York áður en hún byrjaði hjá Advania og var þar í rúma viku og heimsótti vini og ættingja þar.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira