Skikka starfsmenn til að taka aukavaktir Höskuldur Kári Schram skrifar 3. september 2015 18:45
Geislafræðingar saka Landspítalann um að brjóta gegn lögbundnum hvíldartíma starfsmanna með því að skikka þá til að taka aukavaktir. Formaður Félags geislafræðinga hefur sent formlega kvörtun til yfirstjórnar spítalans vegna þessa en dæmi eru um að fólk hafi unnið margar sextán tíma vaktir í röð. Uppsagnir 17 geislafræðinga á Landspítalanum tóku gildi á mánudag en það er um fjórðungur starfandi geislafræðinga á spítalanum. Uppsagnirnar koma í kjölfar verkfalla fyrr í sumar og hefur álagið því aukist gríðarlega á undanförnum vikum. Geislafræðingar segja að spítalinn reyni að mæta þessum vanda með því að neyða starfsmenn til að vinna aukavaktir. „Ég hef heyrt af fólki sem vinnur dag eftir dag sextán tíma í röð. Fær átta tíma hvíld á milli sextán tíma vakta. Ég er að heyra af fólki sem er verið að skikka þannig að það er búið að vinna meira en í tvær vikur. Þetta fólk á að fá sína lögbundnu frídaga og sína lögbundnu hvíld,“ segir Katrín Sigurðardóttir formaður Félags geislafræðinga. Katrín segir þetta vera skýrt brot á gildandi samningum og hefur félagið kvartað formlega til framkvæmdastjóra rannsóknarsviðs Landspítalans. Díana Óskarsdóttir deildarstjóri röntgendeildar Landspítalans segir að spítalinn sé fyrst og fremst að bregðast við þeim vanda sem nú er uppi og ekki sé verið að brjóta gegn gildandi samningum. "Það hefur verið þannig að starfsmenn hafa ekki viljað taka aukavaktir. Fólk hefur verið að skrifa sig á aukavaktalista fram að þessu en gerir það ekki núna þannig að þá þurfum við að biðja fólk um að taka vaktirnar. Ég er búin að taka þetta saman. Það er um 20 prósent umfram vinnuskyldu sem fólk var að vinna að meðaltali núna í ágústmánuði sem er óvenju mikið. Í júní og júlí var þetta heldur minna,“ segir Díana.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Fleiri fréttir „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sjá meira