Ungfrú Kanada meinaður aðgangur að Kína Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2015 13:35 Anastasia Lin, ungfrú Kanada. Vísir/Getty
Ungfrú Kanada, Anastasiu Lin, hefur verið meinaður aðgangur að Kína þar sem hún á að keppa í ungfrú heimur. Lin er meðlimur í Falun Gong samtökunum sem eru ólögleg í Kína og hún hefur gagnrýnt trúmálastefnu stjórnvalda í Kína. Hún segir sjálf frá þessu á Twitter og notar kassamerkið #AfraidOfABeautyQueen, eða hræddir við fegurðardrottningu. Hún er nú í Hong Kong þar sem henni var tilkynnt að hún fengi ekki vegabréfsáritun á meginlandi Kína. Lin hefur mótmælt stefnu stjórnvalda í Kína varðandi trúmál og mannréttindi opinberlega. Samkvæmt frétt CBC í Kanada sagði hún þingmönnum í Kanada í sumar að tugir þúsunda meðlima í Falun Gong hefðu verið myrtir í Kína og líffæri þeirra seld til ígræðslu. I'm in Hong Kong, but the Chinese government has barred me from getting the next flight to Sanya for Miss World. #AfraidOfABeautyQueen— Anastasia Lin (@AnastasiaLinTO) November 26, 2015 Lin flutti frá Kína til Kanada þegar hún var þrettán ára gömul og starfar sem leikkona í Toronto. Hún hefur sagt frá því að eftir að hún var krýnd ungfrú Kanada heimsóttu útsendarar stjórnvalda föður hennar sem býr enn í Kína og með því hafi þeir reynt að hræða hana til þagnar. Hún hafði ekki fengið þátttökubréf frá aðstandendum Miss World en ákvað samt að reyna að komast til Kína. Lin sagði áður en hún fór að yfirvöld í Kína væru að reyna að koma í veg fyrir að hún fengi að tjá sig um mannréttindi þar í landi.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira