Brotalöm í málefnum útsendra starfsmanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. mars 2015 11:30 Sigrún Edda Eðvarðsdóttir. Vísir/GVA
Það virðist vera brotalöm á því hvernig íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa haldið utan um málefni starfsmanna sem eru sendir út til að vinna í sjávarútvegi og -iðnaði. Þetta kemur fram í nýlegri eigindlegri rannsókn Sigrúnar Eddu Eðvarðsdóttur í meistaranámi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Sigrún bendir á að þegar þjálfa á starfsmann og búa undir starfsdvöl í erlendu ríki sé nauðsynlegt að taka hæfileika og persónuleika hans með í myndina. Það þurfi að miðla upplýsingum til viðkomandi um landið. Þetta geti verið hagnýtar upplýsingar um aðbúnað og svæðið sjálft sem viðkomandi ætlar að búa á, um pólitískt, félagslegt og menningarlegt umhverfi. Aðlagist starfsmaðurinn eða fjölskylda hans ekki, geti það haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir starfsmanninn og fyrirtækið sem á í hlut. Það geti valdið kvíða hjá starfsmanninum, slakri frammistöðu og ótímabærri heimkomu. Í útsendum starfsmanni felst mikil fjárfesting og það er mikilvægt að fyrirtækin séu meðvituð um að sú þekking og reynsla sem hann öðlast nýtist í þágu þess. Í rannsókn Sigrúnar kom fram að íslensku fyrirtækin misstu í flestum tilvikum starfsmennina frá sér við heimkomu og var engin áhersla á að halda í þá eða þekkingu þeirra. Margir héldu til starfa á nýjum vettvangi og hafði reynslan sem starfsmennirnir öðluðust fyrst og fremst jákvæð áhrif á starfsferil viðkomandi, en ekki fyrirtækið sem fjárfesti í honum, sem missti þekkinguna frá sér. „Það er mikilvægt fyrir íslensk fyrirtæki að vera með áætlun um það hvernig þau ætli að miðla þekkingu starfsmannsins aftur inn í fyrirtækin og nýta í þágu þeirra,“ segir Sigrún og bendir á að í þessu liggja sóknarfæri. Rannsóknin var unnin í samvinnu við Sjávarklasann í Reykjavík.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira