Þriggja mánaða skilorð fyrir að bíta barnsmóður sína Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. nóvember 2015 11:50 Fyrir dómi viðurkenndi maðurinn að hafa bitið barnsmóður sína, eins og greint var frá í ákæru, en hann beit hana í kinnina, handlegginn og bakið. vísir/getty
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á hendur barnsmóður sinni sem átti sér stað á heimili þeirra í janúar síðastliðnum. Maðurinn var ákærður fyrir að bíta konuna og kýla hana með krepptum hnefa í andlitið. Fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa bitið barnsmóður sína, eins og greint var frá í ákæru, en hann beit hana í kinnina, handlegginn og bakið. Hann neitaði hins vegar að hafa kýlt konuna og var hann sýknaður af þeim lið ákærunnar þar sem hvorki áverkavottorð né ljósmyndir staðfestu slíkt högg, eins og segir í dómi héraðsdóms. Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi sagt að hann hafi verið í neyðarvörn þar sem barnsmóðir hans hafi átt upptökin að átökunum. Konan viðurkenndi fyrir dómi „að hafa rekið hönd í andlit ákærða og hafi hún beðist fyrirgefningar á því, en atvikið hafi leitt til þess að hann hafi ráðist á hana.” Í niðurstöðu héraðsdóms segir að maðurinn sé „stæðilegur“ en konan „til muna minni.“ Það réttlæti ekki ofbeldisfull viðbrögð mannsins þó að konan hafi rekið höndina í andlit hans. „Ljósmyndir sem teknar voru af áverkum brotaþola þessa nótt sýna að ákærði hefur bitið brotaþola fast. Framferði hans getur á engan hátt helgast af neyðarvörn, svo sem atvikum er háttað. Eins og átökin þróuðust þá verður ekki talið að brotaþoli hafi átt upptök að þeim, svo sem ákærði heldur fram. Voru viðbrögð ákærða langt umfram tilefni.“ Dóm héraðsdóms má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira