Yfirlögregluþjónn biður svefnlitla sumarbústaðargesti afsökunar Birgir Olgeirsson skrifar 13. nóvember 2015 16:48 Frá sumarhúsabyggðinni í Tungudal í Skutulsfirði. Vísir/Bæjarins besta „
Það verður bara að viðurkennast að þetta voru mistök sem áttu sér stað,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, um atvik sem átti sér stað í sumarhúsahverfinu í Tungudal í Skutulsfirði aðfaranótt síðastliðins sunnudags. Um var að ræða hóp fólks sem hafði mætt vestur til að vera viðstaddur útför á Ísafirði á laugardag og hafði tekið bústað Vegagerðarinnar í Tunguskógi á leigu frá fimmtudegi til sunnudags. Á fjórða tímanum aðfaranótt síðastliðins sunnudags vaknaði fólkið við það að verið var að berja bústaðinn að utan. Það reyndist vera lögreglumaður sem tilkynnti fólkinu að það mætti ekki vera í bústaðnum samkvæmt reglum sem takmarka búsetu yfir vetrarmánuðina. Samkvæmt heimildum Vísis vildi lögreglumaðurinn fá að vita hver hefði leigt fólkinu bústaðinn. Þegar hann fékk þær upplýsingar að fulltrúi Vegagerðarinnar hefði gert það sagði hann fólkinu að Vegagerðinni ætti að vera það ljóst að það mætti ekki vera í bústaðnum á þessum tíma árs.Hefur reynt að koma afsökunarbeiðni á framfæri við fólkið Um var að ræða leiðan misskilning sem er kominn til af árvekni lögreglunnar á Vestfjörðum við að vara fólk við hættu af snjóflóðum. „Við bara hörmum það og ég hef reynt að koma afsökunarbeiðni á framfæri við þetta fólk,“ segir Hlynur um málið. Var fólkið ekki beðið um að yfirgefa bústaðinn og gat því lagst aftur til hvílu. 5. apríl árið 1994 féll mjög stórt snjóflóð yfir sumarbústaðabyggðina í Tungudal þar sem fjörutíu sumarbústaðir eyðilögðust. Þar lést einn karlmaður og kona slasaðist mikið. Flóðið átti upptök í brún Breiðafells, rann yfir Seljalandsdalinn og var þar 630 metra breitt, féll síðan fram af Seljalandsmúlanum og niður yfir sumarbústaðabyggðina í Tungudal, þar sem það var 450 metra breitt. Ásamt eyðileggingunni sem varð í Tungudal varð mikið tjón á skíðasvæðinu á Seljalandsdal þar sem skíðaskáli, fjórar lyftur og ýmsir kofar og tæki sópuðust í burtu.Tímabilið runnið upp á öðrum svæðum en ekki í Tunguskógi Eftir snjóflóðið úrskurðaði umhverfisráðuneytið um heimild til uppbyggingar og búsetu í hverfinu en samkvæmt henni var enduruppbygging hverfisins heimil, en búseta takmörkuð við tímabilið 16. apríl til 15. desember ár hvert. Það var því ljóst að þetta tímabil var ekki runnið upp síðastliðin laugardag en Hlynur segir misskilninginn kominn til af því að slíkt tímabil sé runnið upp á öðrum svæðum í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Má þar nefna Teigahverfið í Hnífsdal, gömlu byggðina í Súðavík og Grænagarð í Skutulsfirði, en búseta á þeim svæðum er takmörkuð við tímabilið 30. apríl til 1. nóvember ár hvert. „Við höfum undanfarna vetur þurft að banka upp á í fleiri húsum og athuga hvort fólk vissi ekki af þessum kvöðum og í einhverjum tilvikum hefur fólk fengið bústaði lánaða en ekki vitað af þessum kvöðum,“ segir Hlynur. 75 fórust í snjóflóðum á Vestfjörðum á tuttugustu öldinni á, þar af 34 í snjóflóðunum sem féllu á byggðirnar í Súðavík og á Flateyri árið 1995. Eftir þær hamfarir var ráðist í víðtækar aðgerðir til að reyna að koma í veg fyrir slíkan mannskaða. Byggðir hafa verið varðar með snjóflóðavarnargörðum, til dæmis á Flateyri, Ísafirði og í Bolungarvík, og þá hefur einnig verið ráðist í uppkaup húsa líkt og í Súðavík og Hnífsdal.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira