Björn Leví vissi ekki af þingfundi: „Má ég vera hérna?“ Bjarki Ármannsson skrifar 12. desember 2015 12:53 „Ég skil ekki hvað ég er að gera hérna, má ég vera hérna eða hvað?“ spurði Björn í morgun.
Önnur umræða um frumvarp til fjárlaga stendur nú yfir á Alþingi og sér ekki fyrir endann á henni. Þingfundi var slitið stuttu eftir miðnætti og hófst hann aftur klukkan tíu í morgun. Björn Leví Gunnarsson, varaþingmaður Pírata, greindi frá því á fundinum í morgun undir liðnum fundarstjórn forseta að hann hefði mætt of seint vegna þess að hann hefði ekki verið látinn vita af þingfundinum, sem boðað var til með skömmum fyrirvara. „Forseti, þegar ég fór í gær hafði ég ekki hugmynd um að það yrði þingfundur í dag. Ég skilaði tölvu og aðgangskorti og sagði bless,“ sagði Björn, sem tók sæti á þingi í fjarveru Birgittu Jónsdóttur. „Einnig vissi ég að samkvæmt starfsáætlun, þá er þingi lokið. Háttvirtur þingmaður Birgitta Jónsdóttir fór utan í vinnu á laugardegi og ætti samkvæmt öllu að koma aftur að vinna á laugardegi.“ Björn spurði Einar K. Guðfinnsson, forseta Alþingis, út í þingsköp þar sem stendur að varaþingmenn skuli ekki sitja skemur en eina viki nema þingi hafi áður verið frestað eða þinghlé sé hafið samkvæmt starfsáætlun. „Nú lauk starfsáætlun náttúrulega í gær,“ benti Björn á. „Ég skil ekki hvað ég er að gera hérna, má ég vera hérna eða hvað?“Í svari forseta Alþingis kom fram að það væri að sjálfsögðu á ábyrgð Alþingis að láta vita af þingfundum.Vísir/StefánÁ ábyrgð Alþingis að láta alla vita Forseti sagði Björn eiga að vera á þingi samkvæmt þessum lögum. Björn hélt þó áfram og sagði svo hafa staðið á sér í gær þegar tilkynnt var um fundinn í dag með tölvupósti að eina leiðin til að ná í hann hefði verið í síma. „Það var hringt í mig klukkan hálfellefu í morgun og spurt hvort ég vissi ekki að ég væri þingmaður,“ sagði Björn. „Ég svaraði því náttúrulega að ég vissi ekki einu sinni að það væri þingfundur. Ég vil spyrja hvar ábyrgðin á því liggur, hver á að láta vita hvenær þingfundur er? Eru það háttvirtir þingmenn sem starfa hér með mér eða er það Alþingi sjálft?“ Í svari forseta Alþingis kom fram að það væri að sjálfsögðu á ábyrgð Alþingis að láta vita af fundinum. Hann teldi að það hefði verið gert með því að senda tölvupóst á alla starfsmenn og þingmenn og með því að segja frá boðun fundarins á vef Alþingis. Jafnframt hafi hann rætt við fulltrúa allra þingflokkanna áður en fundurinn var boðaður.
Tengdar fréttir Þinglok í fullkominni óvissu Stjórn og stjórnarandstaða takast á um stór mál innan fjárlagafrumvarps næsta árs. Engin önnur stórmál á borði þingmanna. 11. desember 2015 14:12 Önnur umræða hefur staðið í ríflega 40 klukkustundir Önnur umræða fjárlagnna hefur nú staðið yfir í ríflega fjörutíu klukkustundir á Alþingi og sér ekki fyrir endann á henni. Forseti Alþingis segir hana orðna næst lengstu fjárlagaumræðu í tuttugu og fimm ár. 12. desember 2015 11:57 Fá spil önnur en fjárlögin á hendi ríkisstjórnar Líklega fundað fram á nótt þriðja daginn í röð um fjárlögin. Ríkisstjórnin hefur úr fáuum málum að moða í samningum við stjórnarandstöðuna. 11. desember 2015 19:00 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira
Þinglok í fullkominni óvissu Stjórn og stjórnarandstaða takast á um stór mál innan fjárlagafrumvarps næsta árs. Engin önnur stórmál á borði þingmanna. 11. desember 2015 14:12
Önnur umræða hefur staðið í ríflega 40 klukkustundir Önnur umræða fjárlagnna hefur nú staðið yfir í ríflega fjörutíu klukkustundir á Alþingi og sér ekki fyrir endann á henni. Forseti Alþingis segir hana orðna næst lengstu fjárlagaumræðu í tuttugu og fimm ár. 12. desember 2015 11:57
Fá spil önnur en fjárlögin á hendi ríkisstjórnar Líklega fundað fram á nótt þriðja daginn í röð um fjárlögin. Ríkisstjórnin hefur úr fáuum málum að moða í samningum við stjórnarandstöðuna. 11. desember 2015 19:00