Jól

Hurðaskellir er skemmtilegastur

Daði Steinn Wium, 6 ára
Daði Steinn Wium, 6 ára
Hurðaskellir er í mestu uppáhaldi hjá Daða Steini Wium, nemanda í fyrsta bekk Seljaskóla. Daði Steinn var spurður út í jólahald á dögunum ásamt fleiri nemendum Seljaskóla. 

Hlakkar þú til jólanna? Já, þá fer ég í íþróttahús og fæ pakka.



Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Uno, það er dót sem skýtur spilum út.

Áttu uppáhaldsjólasvein? Hurða­skelli, af því hann skellir hurðum.

Hvernig setja jólasveinarnir í skóinn? Þeir klifra upp og setja dótið í.

Hvað gerir Grýla? Tekur krakka.

Hvar eiga jólasveinarnir heima? Uppi í fjöllum.

Hvaða mat viltu borða á jólunum? Hangikjöt, það er gott.


Tengdar fréttir

Jólasveinarnir búa í helli

Grýla setur óþekk börn í poka og borðar þau síðan samkvæmt Máneyju Þuru sem var spurð út í jólin ásamt fleiri börnum úr Seljaskóla.

Guð á afmæli á jólunum

Kristján Helgi Garðarsson, nemandi í Seljaskóla, fer á sleða og snjóbretti um jólin. Hann segir jólin vera haldin í tilefni þess að guð á afmæli en Kristján var spurður út í jólahald á dögunum.

Langar í könguló í jólagjöf

Adam Ómari, nemanda í Seljaskóla, þykir gott að vera heima um jólin og horfa á bíómyndir. Hann var spurður út í jólahald á dögunum.

Finnst hangikjötið gott

Aníta Sóley Gunnarsdóttir er nemi í fyrsta bekk Seljaskóla. Hún var nýlega spurð út í jólahaldið framundan.

Kertasníkir í uppáhaldi

Alma Fenger, nemandi í Seljaskóla, var spurð út í jólin og tilgang þeirra.

Duftið hjálpar jólasveinunum

Heiðbjört Líf Ólafsdóttir, nemi í Seljaskóla, telur jólasveinana nota duft og sleða þegar þeir gefa börnum í skóinn. Heiðbjört var spurð út í jólin eins og fleiri nemendur Seljaskóla.

Erfið leiðin að jólaskónum

Stefán Pétur Bragason, telur að jólasveinarnir brjóti glugga til að koma góssi í skó barna. Hann og fleiri nemendur Seljaskóla voru spurðir út í jólin á dögunum.






×