Jól

Guð á afmæli á jólunum

Kristján Helgi Garðarsson
6 ára
Kristján Helgi Garðarsson 6 ára GVA
Kristján Helgi Garðarsson, nemandi í Seljaskóla, fer á sleða og snjóbretti um jólin. Hann segir jólin vera haldin í tilefni þess að guð á afmæli en Kristján var spurður út í jólahald á dögunum. 

Hvað gerist á jólunum? Guð á afmæli.

Hvað gerir þú um jólin? Fer oft út, á sleða og snjóbretti.

Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Lego og bíla.

Þekkirðu jólasveinana? Já, Stekkjastaur, Stúf, Giljagaur, Kertasníki.

Hvernig setja jólasveinarnir í skóinn? Þeir opna gluggann og teygja sig til að setja í skóinn.

Hvaða mat viltu borða á jólunum? Lambakjöt, gæs, kjúkling.


Tengdar fréttir

Jólasveinarnir búa í helli

Grýla setur óþekk börn í poka og borðar þau síðan samkvæmt Máneyju Þuru sem var spurð út í jólin ásamt fleiri börnum úr Seljaskóla.

Kertasníkir í uppáhaldi

Alma Fenger, nemandi í Seljaskóla, var spurð út í jólin og tilgang þeirra.

Erfið leiðin að jólaskónum

Stefán Pétur Bragason, telur að jólasveinarnir brjóti glugga til að koma góssi í skó barna. Hann og fleiri nemendur Seljaskóla voru spurðir út í jólin á dögunum.






×