Jól

Kirkjan iðar af lífi í desember

"Við göngum að sjálfsögðu inn í aðventuna með opnum huga," segir Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju. "Við sjáum hvernig allt iðar af lífi og krafti í þjóðfélaginu, en reynum eins og við getum að koma með hinn kristna boðskap inn í aðventuhátíðina, þar sem rödd Jesú Krists fær að hljóma um frið í hjarta. Það er ekki nóg að eiga umbúðir og skraut og mikið af ljósum ef maður á ekki frið og ljós hið innra. Til að upplifa þennan frið bjóðum við fólki upp á samverustundir í kirkjum landsins, margskonar samverur, helgihald, tónleika, kyrrðarstundir og bænastundir í tugum talið." Í Hallgrímskirkju verða 16 tónleikar á aðventu og jólum og 27 guðsþjónustur og kyrrðarstundir. "Að auki fáum við skóla- og leikskólaheimsóknir og heimsækjum stofnanir hér í kring, þannig að samtals eru þetta 58 athafnir. Ég býst við að í þessari kirkju getum við reiknað um 20.000 manns á aðventu sem er líkt og í fyrra og mjög gleðilegt. Þrátt fyrir efnishyggju og velgengni sem einkennir töluvert okkar þjóðfélag hefur fólk mikla þörf fyrir að komast inn í kyrrðina og upplifa eitthvað fallegt sem gleður huga og sál. Við megum heldur ekki gleyma að við erum með allt of stóran hóp af fólki sem líður illa, fólki sem berst við fátækt og margskonar vandamál og þetta fólk leitar til Hjálparstofnunar kirkjunnar eftir aðstoð og í kirkjuna eftir andlegum styrk. En við viljum undirstrika að kirkjan okkar mun iða af lífi allan desember og hvetjum fólk til að taka sér tíma til að upplifa friðinn og helgina á aðventu."


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×