Jól

Jólasveinarnir búa í helli

Máney Þura Kristjánsdóttir 6 ára.
Máney Þura Kristjánsdóttir 6 ára. Vísir/GVA
Grýla setur óþekk börn í poka og borðar þau síðan samkvæmt Máneyju Þuru sem var spurð út í jólin ásamt fleiri börnum úr Seljaskóla.



Hvað gerist um jólin?

Þá koma jólasveinarnir og gefa pakka og í skóinn.

Hvað langar þig að fá í jólagjöf?

Bangsa sem getur talað á ensku. Hann heitir Furby.

Áttu uppáhaldsjólasvein?

Þennan minnsta en ég man ekki hvað hann heitir. Ég elska hann, hann er skemmtilegastur.

Veistu hvað Grýla gerir?

Hún setur börn í poka ef þau eru ekki stillt, hendir þeim í pottinn sinn og borðar.

Hvar eiga jólasveinarnir heima?

Í helli.

Hvaða mat viltu borða á jólunum?

Grillað lambakjöt og folaldakjöt.


Tengdar fréttir

Kertasníkir í uppáhaldi

Alma Fenger, nemandi í Seljaskóla, var spurð út í jólin og tilgang þeirra.






×