Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Krumma í Mínus Birgir Olgeirsson skrifar 17. desember 2015 16:45 Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus. Vísir/Vilhelm
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Oddi Hrafn Stefáni Björgvinssyni, betur þekktum sem Krumma í Mínus, fyrir brot gegn valdstjórninni. Var Krummi dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar en fullnustu hennar er frestað haldi hann skilorði í tvö ár. Krummi var sakaður um að hafa sparkað í hægri fót lögreglumanns aðfaranótt 12. júní 2013 á heimili hans. Við aðalmeðferð málsins neitaði hann sök. Lögreglu hafði borist kvörtun frá nágranna hans vegna háværrar tónlistar sem barst frá íbúð hans. Þrír lögreglumenn bönkuðu upp á og báðu Krumma að lækka. Þá sögðust þeir finna kannabislykt úr íbúðinni en hann bauð þeim inn, þar sem hann hafði ekkert að fela, eins og hann orðaði það við aðalmeðferð málsins. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness var Krummi sagður hafa kallað lögreglumennina og sérstaklega einn þeirra „fávita“ og hafi önnur og verri orð fylgt þar á eftir. Var Krummi sagður hafa lækkað tónlistina en þegar lögreglan hafi gert sig líklega til þess að fara út, hafi hann sparkað í fótlegg eins lögreglumannsins, þess sem hann hafði mest beint orðum sínum að. Hafi ekki hlotist af áverki en Krummi var handtekinn og mátt gista fangageymslur lögreglu í framhaldi af því. Krummi sagði fyrir dómi að lögreglumennirnir hefðu verið dónalegir og með yfirgang. „Þeir kíkja aðeins inn og eru að litast um,“ sagði Krummi. „Þeir sjá að vinkona mín er þarna inni og um leið og þeir koma inn eru þeir ókurteisir. Þeir eru með leiðindatón og spyrja hana á ensku hvort hún sé að skemmta sér, „Are you having a good time?“ Þetta fór fyrir brjóstið á mér og við byrjum að rífast, ég og lögreglumennirnir.“ Hann viðurkenndi að hafa verið dónalegur og að hafa ýtt við lögreglumann, en sagðist ekki hafa sparkað í neinn. „Mér fannst tími til kominn að þeir færu, þeir voru búnir að vera með dónaskap og yfirgang við mig og vinkonu mína þarna inni á mínu heimili. Áður en ég veit af er ég síðan bara kominn gólfið, þeir skella mér harkalega niður, tóku mjög fast á mér og handjárnuðu mig harkalega.“
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Þakplötur og trampólín á flugi Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Fleiri fréttir 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns til ákæranda Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Sjá meira