Formúla 1

McLaren á tvær sekúndur inni

Ökumenn McLaren liðsins eru bjartsýnir á framhaldið.
Ökumenn McLaren liðsins eru bjartsýnir á framhaldið. Vísir/Getty
Ökumenn McLaren liðsins, Fernando Alonso og Jenson Button telja tveggja sekúndna framfarir afar mögulegar í vetur. Þeir telja mögulegt að þeir muni berjast um verðlaunasæti á næsta ári.

McLaren liðið náði aðeins í 27 stig á nýliðnu tímabili. Algengt var að sjá McLaren bílana neðsta á lista yfir hröðustu brautartíma. Að meðaltali voru McLaren bílarnir 2,4 sekúndum hring á eftir Mercedes bílunum en 1,8 sekúndum á eftir þeim sem næstir koma á eftir Mercedes í hvert skipti.

Framfarir um tvær sekúndur í vetur myndu því setja McLaren bílana inn í hóp þeirra sem eru bestir af restinni, þeir sem eru næstir á eftir Mercedes.

Framfarir annarra liða munu þó þýða að McLaren þarf sennilega að finna ögn meira en tvær sekúndur.

„Það eru nokkrir hlutir sem munu skila miklum framförum sem við höfum þegar lagað, þetta eru hlutir sem þú getur ekki einfaldlega sett á bílinn á miðju tímabili. Ég er mjög jákvæður á framhaldið,“ sagði Button í samtali við Top Gear.

„Ég held við munum ekki koma á óvart vegna þess að fólk býst við því að við séum samkeppnishæfir, við munum ekki vinna keppnir en við munum berjast um verðlaunasæti,“ bætti Button við.

Alonso telur að McLaren geti fundið enn meiri tíma ef allt smellur saman. Talið er að hann hafi góða ástæðu til þess. Vísbendingar eru á lofti og orðrómar á kreiki um gríðarlegar framfarir Honda, sem skaffar McLaren vélar.

„Ég tel að við eigum eftir að sjá miklar framfarir og jafnvel meira en tvær sekúndur,“ sagði Alonso.

„Öll liðin munu ná framförum í vetur sem nema um hálfri til einni sekúndu. Það er eðlileg þróun fyrir lið yfir veturinn. Við þurfum að gera miklu meira en það og vélin er þar stærsti þátturinn,“ sagði Alonso.


Tengdar fréttir

Honda setur markið á Ferrari

Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina.

Brösótt endurkoma Honda

Yfirmaður kappakstursmála hjá vélaframleiðandanum Honda segir að endurkoman í Formúlu 1 hafi ekki gengið sem skyldi.

Kevin Magnussen yfirgefur McLaren

Varaökumaður McLaren liðsins fer frá liðinu til að reyna að tryggja sér keppnissæti á næsta ári annars staðar en hjá McLaren.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×