Þiggjendum fjárhagsaðstoðar fækkar um þrjú hundruð Jón Hákon Haraldsson skrifar 18. desember 2015 05:00 Magnús Már Guðmundsson
Þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Reykjavíkurborg hefur fækkað um 10,9 prósent í ár. Þeir voru 3.080 á tímabilinu janúar til október 2014 en fækkaði niður í 2.745 á sama tímabili í ár. Kristjana Gunnarsdóttir, sviðsstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, segir að þróunina megi fyrst og fremst skýra með því að möguleikar á atvinnumarkaði hafi aukist og dregið úr atvinnuleysi. „Svo höfum við á velferðarsviði verið með ýmis átaksverkefni í gangi til þess að hvetja fólk þannig að það geti tekið störf þegar þau bjóðast. Þannig að ég held að þetta sé sambland af þessu,“ segir Kristjana. Starfsfólk á velferðarsviði hafi veitt þessum hópi fólks sérstaka athygli og hvatningu með stuðningi og ráðgjöf. Kristjana segir að fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð hafi byrjað að fækka 2011. En því hafi fækkað mjög ört á þessu ári. Hún fagnar þessari þróun. „Og það sem er sérstakt fagnaðarefni er að ungu fólki er að fækka mjög mikið hjá okkur og komast í vinnu.“ Magnús Már Guðmundsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í velferðarráði Reykjavíkurborgar, tekur undir með Kristjönu. „Ég held það óski þess enginn að vera á fjárhagsaðstoð,“ segir Magnús Már. Samstarf við starfsendurhæfinguna Janus og starfsendurhæfingarsjóðinn Virk, Vinnumálastofnun og fleiri hafi skipt mjög miklu máli. „Auðvitað er ekkert hægt að horfa fram hjá því að þetta er gott fyrir samfélagið að fá fleiri á vinnumarkaðinn,“ segir Magnús og bætir því við að fjárhagsaðstoð sé stór kostnaðarliður hjá borginni.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Banaslys á Hvolsvelli Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fleiri fréttir Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn Sjá meira