Margrét Frímannsdóttir hætt á Litla-Hrauni Bjarki Ármannsson skrifar 23. nóvember 2015 17:18 Margrét tók við embættinu í ársbyrjun árið 2009 en hafði þá gengt starfinu í forföllum í heilt ár. Vísir/GVA
Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni, hefur sagt upp störfum. Hún tók við embættinu í ársbyrjun árið 2009 en hafði þá gengt starfinu í forföllum í heilt ár. DV greindi fyrst frá uppsögninni. „Ég er með þriggja mánaða uppsagnarfrest og ég er búin að vera í átta ár,“ segir Margrét. „Það var bara kominn tími til að breyta til.“ Margrét segir alls ekkert annarlegt á bak við ákvörðun sína að segja upp störfum, sem hafi verið nokkuð lengi að gerjast. „Að taka þessa ákvörðun er erfitt, það er búið að vera mjög gefandi að vinna í fangelsunum og það tekur bara smá tíma að taka þessa ákvörðun.“ Margrét var á árum áður formaður Alþýðubandalagsins og þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Hún segir ekkert liggja fyrir um það hver næsti starfsvettvangur verði. Að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra er Tryggvi Ágústsson staðgengill Margrétar og tekur hann tímabundið við stöðunni þar til ráðið verður í hana eftir auglýsingu. Tryggvi hefur verið deildarstjóri á Litla-Hrauni um árabil. Páll vildi lítið tjá sig um málið að öðru leyti.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira