Ærið verkefni bíður Hollande Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. nóvember 2015 16:00 Búist er við því að Hollande þrýsti á Obama og stuðning Bandaríkjanna í baráttuni við Íslamska ríkið. vísir/Ap
Barack Obama Bandaríkjaforseti og Francois Hollande forseti Frakklands funda nú í Hvíta Húsinu í Washington. Leiðtogarnir hafa ekki fundað síðan hryðjuverkamenn réðu 130 manns bana í París á dögunum. Fjölmiðlaspekingar vestanhafs gera sterklega ráð fyrir því að samhæfðar aðgerðir ríkjanna tveggja gegn meðlimum Íslamska ríkisins verði efst á baugi á fundinum í dag. Þó er ekki búist við því að niðurstöður fundarins verði aðrar en táknrænar. „Ég vil ekki blása upp væntingarnar fyrir fundinum en ég vil heldur ekki gera lítið úr miklvægi þess að sýna samstöðu og auka samvinnu,“ sagði fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins í gær. Hollande ferðast nú sem eldibrandur um heiminn og reynir að sannfæra leiðtoga hins vestræna heims um að styðja sig í komandi átökum Frakka við Íslamska ríkið. Í kjölfar heimsóknar sinnar til Bandaríkjanna mun hann funda með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Væntanlega heimsókn Hollande til Rússlands er sögð fara mjög illa í bandarísku gestgjafa hans.Sjá einnig: „Atburðir dagsins munu hafa mjög alvarlegar afleiðingar“Bandaríkjamenn og Rússar hafa eldað grátt silfur á síðustu vikum vegna mismunandi áherslna ríkjanna tveggja í baráttunni gegn Íslamska ríkinu í Sýrlandi. Obama lýsti því þannig yfir í heimsókn sinni til Malasíu á sunnudag að hann efaðist um heilindi Rússa í baráttunni við ISIS. „Þetta snýst í raun um hvort Rússar geti ráðist í þær hagræðingar sem nauðsynlegar eru svo þeir geti reynst okkur öflugur bandamaður,“ sagði Obama á sunnudag. Talið er ólíklegt að Bandaríkin og Rússland geti tekið höndum saman í þeirri baráttu, eins og Hollande gerir sér grillur um, vegna andstöðu Bandaríkjamanna við stjórn Assads Sýrlandsforseta – sem Rússar vilja ómögulega hrófla við. Frakkar eru á sömu blaðsíðu og Bandaríkjamenn í þeim efnum og undirstrikaði Hollande það í máli sínu í gær. „Farsælasta niðurstaðan væri sú að mynda sameinaða stjórn í Sýrlandi og gefa skýr skilaboð um að Assad geti verið framtíð þjóðarinnar sem hann hefur aðstoðað við að slátra,“ sagði Frakklandsforseti. Ljóst er að Hollande þarf að gefa eftir í þeirri afstöðu sinni vilji hann sannfæra Rússa um að gangast til liðs við sig en sú kúvending myndi fara illa í Bandaríkjamenn. Frakklandsforseta bíður því ærið verkefni á næstu dögum vilji hann sannfæra þessa fornu fjendur um að róa í takt.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira