Borgin eflir upplýsingagjöf til innflytjenda Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2015 17:10 Á annað hundrað manns sóttu fundinn sem fram fór í gær. Mynd/Reykjavíkurborg
Fyrsti sameiginlegi fundur fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar og borgarstjórnar var haldinn í Tjarnarsal ráðhússins í gær. Í frétt á vef borgarinnar segir að fundurinn hafi verið vel sóttur og rúmlega hundrað manns tekið þátt. „Fundurinn hófst á því að borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson flutti erindi um stefnumörkun í málefnum innflytjenda í Reykjavík. Í máli borgarstjóra kom fram að hann sé stoltur af fjölmenningarborginni Reykjavík þar sem virkur stuðningur, samtal og upplýsingagjöf á sér stað. Borgarstjóri sagði að ýmislegt væri nú þegar í vinnslu sem myndi styrkja Reykjavík sem fjölmenningarborg. Verið væri að leggja lokahönd á nýjan vef á ensku um alla þjónustu borgarinnar. Í upphafi nýs árs yrði bæklingnum Living in Reykjavík dreift til allra nýrra íbúa í borginni en árlega koma um 11 þúsund nýir íbúar til Reykjavíkur eða flytja á milli hverfa. Bæklingurinn verður bæði á íslensku og ensku og verður fyrsta tenging borgarinnar við þá íbúa sem hingað flytja. Verkefnið tengist þátttöku borgarinnar í fjölmenningarborgum (e. Intercultural Cities) og hefur að markmiði að taka betur á móti nýjum íbúum en í honum eru íbúar boðnir velkomnir til borgarinnar. Samhliða útgáfu bæklingsins og vefsíðunnar hefst ný tegund af ráðgjafarþjónustu sem unnin verður í samstarfi mannréttindaskrifstofu, velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Í fyrstu verður verkefnið til reynslu í þrjá mánuði. Sex til sjö ráðgjafar verða staðsettir í Ráðhúsi Reykjavíkur, nánar tiltekið í kaffihúsinu, en íbúar af erlendum uppruna geta komið alla þriðjudagsmorgna og fengið ráðgjöf um þjónustu borgarinnar og fleira sem þeir óska eftir. Enginn kostnaðarauki verður af þessu verkefni þar sem starfsmenn borgarinnar, frá þjónustumiðstöðvum velferðarsviðs, skóla og frístundasviðs og mannréttindaskrifstofu veita ráðgjöfina. Samhliða því munu þessir starfsmenn fá aukna þekkingu á því hvernig þjónusta á ólíka hópa fólks af erlendum uppruna. Þjónustan verður veitt á nokkrum tungumálum,“ segir í fréttinni. Tomasz Chrapek, formaður fjölmenningarráðs, tók einnig til máls og sagði frá helstu verkefnum ráðsins og kynnti helstu niðurstöður fjölmenningarþings. „Þá tóku sviðsstjórar allra fagsviða borgarinnar til máls og sögðu frá því hvað verið væri að gera á þeirra sviðum til þess að tryggja þátttöku og þjónustu við innflytjendur í Reykjavík. Undir liðnum Raddir innflytjenda tóku til máls Ania Wozniczka og Angelique Kelley og sögðu frá W.O.M.E.N sem eru samtök kvenna af erlendum uppruna. Renata Pesková frá samtökunum Móðurmál flutti erindi og að lokun kynnti Anna Wojtynska helstu niðurstöður rannsóknar á húsnæðismálum meðal Pólverja í Reykjavík,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Fleiri fréttir Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Sjá meira