Tveggja ára dómur fyrir að hafa haft munnmök við sofandi mann 26. nóvember 2015 17:23 Andri sagðist hafa haft munnmök við manninn með hans samþykki. vísir/gva
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir 27 ára karlmanni, Andra Tómasi Jónssyni, fyrir kynferðisbrot gegn öðrum karlmanni. Andra var í ákæru gefið að sök að hafa haft munnmök við sofandi mann, sem ekki hafi getað spornað við verknaðnum sökum ölvunar og svefndrunga. Atvikið mun hafa átt sér stað í gleðskap í Reykjavík í apríl 2012. Maðurinn sagði fyrir dómi að fjölmennt hafi verið í íbúðinni en þegar liðið hafi á nóttina hafi hann óskað eftir leyfi hjá húsráðanda til að gista í íbúðinni. Hann hafi lagst ölvaður í sófa í stofunni og sofnað við það. Hann hafi síðan vaknað við það að ákærði hafi legið í klofinu á honum, með typpið uppi í honum, líkt og segir í dómnum. Maðurinn kærði árásina rúmlega ári síðar. Hann sagðist allan þann tíma hafa reynt að gleyma atvikinu, bæla það niður en að það hafi þó plagað hann reglulega. Þegar hann hafi svo séð Andra Tómas með bróður sínum hafi hann hugsað að hann þyrfti að gera eitthvað í málinu. Andri Tómas sagðist hafa haft við manninn munnmök með hans samþykki. „Síðan þegar aðeins lengra er komið spyr ég hann: „finnst þér þetta gott?“ og hann segir „já“ og þá segi ég svona í gríni „já strákar kunna að gera þetta“ og hann segir „ég sé það og síðan segir hann „en ég held þú þurfir að hætta“ og ég segi okey og hætti og er að reyna að sannfæra hann um að leyfa mér þetta aftur og hann leyfir mér það ekki og fer síðan inn til vinar míns og fer að sofa,“ sagði hann fyrir dómi. Dómurinn taldi sannað að maðurinn hefði ekki getað spornað við verknaðnum, og var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur. Andra Tómasi er gert að greiða manninum eina milljón króna í skaðabætur og allan áfrýjunarkostnað málsins, 1,2 milljónir.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira