Fangelsismálastofnun skilin eftir á köldum klaka Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2015 19:45
Á sama tíma framlög til lögreglunnar verða aukin um 400 milljónir króna á næsta ári verða framlög til fangelsismála aðeins aukin um 29 milljónir. Það nær því ekki að vera helmingur þess fjármagns sem Fangelsismálastofnun telur sig þurfa til að starfsemi hennar bresti ekki. Breytingartillögur ríkisstjórnarinnar á eigin fjárlagafrumvarpi hafa ekki verið gerðar opinberar en þær fela í sér hækkun útgjalda á næsta ári upp á 6,7 milljarða. Meðal annars verða framlög til lögreglunnar hækkuð um 400 milljónir ofan á 500 milljóna varanlega hækkun í fyrra. Á hinum enda löggæslu- og réttarkerfisins er hins vegar aðeins gert ráð fyrir lítilsháttar leiðréttingu á sjö ára samfelldum niðurskurði framlaga upp á 25 prósent til fangelsismála. Brynhildur Pétursdóttir, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, segir þennan málaflokk ekki hátt skrifaðan hjá stjórnvöldum. „Þetta stingur í augu að það er gert ráð fyrir 40 milljóna króna hækkun í fangelsismálin. Á næsta ári opnar væntanlega nýtt fangelsi og það hlýtur að þurfa aukið rekstrarfé í það. Ekki ætlum við að loka Litla-Hrauni og fjölmargir bíða eftir að fá að taka út sinn dóm. Þannig að ég hef áhyggjur af því að fangelsismálakerfið sé í raun fjársvelt,“ segir Brynhildur. Í raun eru aukning framlaga til fangelsismála ekki nema 29 milljónir, því í fjárlagafrumvarpinu sjálfu var gert ráð fyrir 11 milljóna niðurskurði til Fangelsismálastofnunar á næsta ári. Páll Winkel fangelsismálastjóri hefur margítrekað opinberlega að framlög til málaflokksins standi ekki undir rekstri fangelsis- og betrunarkerfisins enda hafi þurft að loka til dæmis Kvennafangelsinu vegna fjárskorts og draga úr ýmissri betrunarstarfsemi. Þá er tvímennt í klefum og vistun manna í fangelsinu á Skólavörðustíg er í raun brot á alþjóðlegum mannréttindum. „Mér finnst við ekki framsýn þegar kemur aðþessum málaflokki. Við gætum með því að setja aukið fjármagn núna í aðstoð ýmis konar eins og sálfræðiaðstoð, aukið ná; betrun getum við kallað það, getum við sparað til lengri tíma. Vegna þess að endurkomutíðni er of há hér á Íslandi. Það er ekkert sem tekur við oft á tíðum þegar fangar koma út,“ segir Brynhildur. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar taldi Fangelsismálastofnun sig þurfa að lágmarki 80 milljónir til að halda í horfinu og til að koma í veg fyrir algert hrun í fangelsismálum þjóðarinnar. En með auknum framlögum til löggæslu má búast við fleiri föngum í kerfi þar sem rúmlega 400 manns geta ekki hafið afplánun vegna skorts á fangarýmum.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira