Fyrirtækin velja stöðuga og lága vexti Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. nóvember 2015 08:00 Allur gangur er á því hvort íslensk fyrirtæki kjósa að styðjast við krónuna sem uppgjörsmynt. Flest fyrirtækjanna sem kjósa erlenda mynt gera upp í evrum, en þar á eftir kemur Bandaríkjadalur. Vísir/Valli
Einungis níu af tuttugu og fimm stærstu fyrirtækjum landsins notast við krónu sem uppgjörsmynt. Ellefu styðjast við Bandaríkjadal og fimm gera upp í evrum, samkvæmt samantekt í nýjasta hefti efnahagsritsins Vísbendingar. Í ritinu er notast við nýja samantekt Frjálsrar verslunar á 300 stærstu fyrirtækjum landsins. Þá má sjá að hlutfall krónu í veltu stærstu fyrirtækja landsins nemur 22,7 prósentum þótt þau séu 36 prósent fjöldans. „Lengi hefur verið vitað að flest íslensk sjávarútvegsfyrirtæki nota evruna í sínum ársreikningum og álfyrirtækin nota Bandaríkjadal. Það sama gildir um nokkur orkufyrirtæki,“ segir í umfjöllun Vísbendingar. Talað er um að fyrirtæki „kjósi með fótunum“ og velji í bókhaldi sínu þá mynt sem þau telji að henti best og leiði til mesta stöðugleika í uppgjöri. „Þessi fyrirtæki velja stöðugleika og lága vexti, en almenningur á ekki þetta val,“ segir í Vísbendingu og vísað til þess lærdóms sem draga hafi mátt af hruninu að fái fólk greitt í krónum sé hættulegt að skulda í erlendri mynt. „Sérstaklega þegar stjórnmálamenn telja aðalkost krónunnar þann að hægt sé að fella gengi hennar. Þess vegna mun almenningur ekki fá notið stöðugleika og hagræðis sterkrar myntar meðan krónan er gjaldmiðill Íslands.“ Bent er á að margir aðhyllist að Íslendingar taki upp aðra mynt en íslensku krónuna og þar hafi forsætisráðherra nefnt bæði Kanadadal og norska krónu. „Ætla mætti að mörg fyrirtæki vildu nota þessar myntir, sem að sögn „henta Íslendingum vel“, en það er öðru nær. Af 276 fyrirtækjum sem mega gera upp í erlendri mynt eru bara sjö sem nota þessar ágætu myntir.“ Einhliða upptöku myntar fylgi líka vandamál sem komast megi hjá með stuðningi seðlabanka við gjaldmiðil, svo sem vantraust á bankakerfinu. „Algjört frelsi fyrir Íslendinga í peningamálum, frelsi þar sem þeir menn geta nýtt sér lægri vexti öruggari myntar en krónunnar er útilokað nema hér á landi verði hreinlega tekin upp erlend mynt sem hefði baktryggingu seðlabanka þeirrar myntar. Þar er ekki nema um eina mynt að ræða,“ segir í umfjöllun Vísbendingar, en í úttekt Seðlabankans á valkostum landsins í peningamálum 2012 var niðurstaðan sú að valið stæði á milli krónu og evru.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira