Fékk blóm í stað sektar: Var á leið með móður sína í líknarmeðferð Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. nóvember 2015 21:54 Konan var afar þakklát fyrir hlýju lögreglumannsins. vísir/getty
Lögreglukona í Massachusets-ríki í Bandaríkjunum hefur verið heiðruð í kjölfar þess að hún sendi konu blóm í stað þess að sekta hana fyrir of hraðan akstur. Konan hafði ekið á 65 kílómetra hraða á klukkustund á svæði þar sem hámarkshraðinn var 50. Sagt var frá málinu á boston.com. Laganna vörður, Ashley Catato, stöðvaði ökumanninn, Robin Sutherland, og spurði hana hvort hún vissi hví verið væri að stöðva hana. „Var ég að fara of hratt? Það hefur ekki gerst síðan 1985,“ sagði ökumaðurinn. Lögreglumaðurinn hló að henni og sagði að hún myndi sleppa í þetta skipti með áminningu. Þegar Ashley kom aftur til Robin, eftir stutt stopp í lögreglubílnum, var hún grátandi. Henni þóttu það nú fullsterk viðbrögð yfir því að fá aðvörun en ástæðan fyrir grátnum var önnur. Robin var á leið á sjúkrahús að fylgja níræðri móður sinni í líknarmeðferð eftir að krabbameinsmerðferð var árangurslaus. Þegar Ashley kom heim að loknum vinnudegi ákvað hún að senda Robin blóm. Í korti sem fylgdi blómunum stóð að henni þætti leitt að heyra hvernig komið væri fyrir móður hennar. Hún vonaði að því fylgdi einhver huggun að vita að hún hefði lifað löngu lífi og að hún myndi lifa áfram í huga hennar og hjarta. Undir þetta ritaði hún „lögregluþjónninn sem stöðvaði þig í morgun.“ „Stundum í vinnunni þá langar mig að faðma fólk en geri það ekki af því ég er hrædd um að því þyki það skrítið,“ segir Catato um það hví hún ákvað að senda Sutherland blómin.This note followed a @SomervillePD traffic stop. @seracongi has a story you won't want to miss at 6:15am! #wcvb pic.twitter.com/7RiFi5rr2J— Jenny Barron (@JennyWCVB) November 5, 2015
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira