Þjófur óð í vasa gesta í Áskirkju í miðri útför Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 16. nóvember 2015 07:00 Séra Sigurður Jónsson prestur í Áskirkju segir þjófinn hafa verið glæsilegan pilt, vel til fara og biðlar til hans að skila þýfinu. vísir/hari „
Hann yrði auðvitað maður að meiri ef hann skilaði fengnum. Það er bréfalúga á kirkjunni ef hann vildi smeygja einhverju þar inn,“ segir séra Sigurður Jónsson, prestur í Áskirkju, og biðlar til þjófs að skila veski sem hann stal úr yfirhöfn kirkjugests í útför í síðustu viku. Þjófurinn athafnaði sig í miðri útför í Áskirkju á miðvikudaginn. Kirkjuvörður kom að ungum manni sem þreifaði utan á yfirhöfnum gesta í fatahengi í anddyri kirkjunnar. Þegar hann spurði manninn hvað hann væri að gera, réðst hann að honum, sló hann í andlitið og hljóp út úr kirkjunni. „Þetta var á miðvikudaginn var, þá var útför og nokkuð fjölmenn. Þannig var að kirkjuvörðurinn kemur að manni sem er að þreifa á yfirhöfnum, ávarpar hann og spyr hann hvort hann vanti eitthvað. Þá slær hann kirkjuvörðinn högg í andlitið og hleypur út. Það var farið á eftir honum, bæði kirkjuvörðurinn og útfararþjónar. En hann komst undan. Svo kom í ljós að maður saknaði veskis úr yfirhöfn sinni,“ segir séra Sigurður um atburðarásina. Hann segir lögreglu hafa komið strax á staðinn og tekið skýrslu af þeim sem urðu vitni að þessu. Séra Sigurður segist halda að þjófar fylgist jafnvel með útfarartilkynningum. Aðferðin sé þekkt þótt í Áskirkju hafi menn ekki orðið fyrir barðinu á þjófum áður með þessum hætti. „Þetta er býsna langt gengið en maður hefur heyrt áður að þetta sé þekkt aðferð. Það er eins og menn fylgist þá með útfarartilkynningum.“ Honum segist brugðið. Piltinum er lýst sem glæsilegum ungum manni á þrítugsaldri. „Þetta var glæsilegur piltur á þrítugsaldri, vel til fara. Í fínni útivistarúlpu. Þetta er allt frekar ömurlegt.“ Séra Sigurður segir kirkjugesti þurfa að hafa varann á sér og geyma ekki mikil verðmæti í yfirhöfnum sínum. „Við verðum bara að læra af þessu og vera með okkar fólk í viðbragðsstöðu auk þess að biðja fólk að geyma ekki mikil verðmæti í yfirhöfnum sínum.“ Hann rifjar upp þjófnað fyrir um áratug í Áskirkju. „Þá var brotin rúða í bíl, þar lá í framsæti hlutur sem líktist fartölvu. Þjófurinn greip hlutinn og lét sig hverfa. Þetta reyndist hins vegar vera biblía með renndri kápu, hún hefur vonandi orðið honum til góðs.“
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira