Vilja 16 ára kosningaaldur í Bretlandi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. nóvember 2015 23:54 David Cameron er andvígur því að kosningaaldur verði lækkaður. vísir/epa
Lávarðadeild breska þingsins samþykkti í dag að lækka kosningaaldur Breta í sextán ár vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Bretlands að Evrópusambandinu. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, er þó andvígur því að kosningaaldur verði lækkaður. Tillaga um viðauka við lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar, sem fyrirhuguð er eftir tvö ár, var samþykkt með 293 atkvæðum gegn 211. Hún verður í kjölfarið tekin fyrir á neðri deild þingsins, þar sem í ljós kemur hvort niðurstöðunni verði hnekkt eða ekki. Þingmenn í efri og neðri deildum þingsins eru á öndverðum meiði um hvernig taka eigi á málinu, en náist ekki sátt um kosningaaldurinn gæti svo farið að ekki verði hægt að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna á tilsettum tíma – fyrir árslok 2017, líkt og Cameron hefur lofað. Kosningaaldur í Bretlandi er átján ár, en var færður í sextán ár í þjóðaratkvæðagreiðslunni um sjálfstæði Skotlands í fyrra. Samkvæmt breskum skoðanakönnunum eru ungmenni líklegri til að vilja áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu en hinir eldri. Cameron vill sjálfur áfram í sambandinu, en er tilbúinn til að endurskoða afstöðu sína nái hann ekki fram betri samningum.
Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Innlent Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Erlent Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Innlent Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Innlent Fleiri fréttir Samþykkja að framselja Úkraínumann vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Trump-liðar heita hefndum Nefnd SÞ segir Ísraelsmenn hafa framið þjóðarmorð á Gasa Látlausar sprengjuárásir á Gasa í nótt Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Sjá meira