Kostar meira að breyta flugi en að panta nýtt Sveinn Arnarsson skrifar 2. nóvember 2015 07:00 Reykjavíkurflugvöllur. Hægt er að bóka flug frá Akureyri til Reykjavíkur fyrir um 11 til 14 þúsund krónur. Að breyta áður bókuðu flugi þurfti Guðrún hinsvegar að greiða mun hærri fjárhæð. vísir/gva
Guðrún Björk Guðmundsdóttir þurfti að greiða sem samsvarar 21.300 krónum fyrir að færa innanlandsflug sitt um nokkra daga eða mun meira en fargjaldið kostar. „Mér er bara gróflega misboðið,“ segir Guðrún Björk. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair segir tilefni til að endurskoða framkvæmd skilmála hér innanlands. Guðrún Björk er búsett í Danmörku og keypti flug í einum pakka frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur og frá Reykjavík norður á Akureyri með stuttum fyrirvara vegna veikinda í fjölskyldu. Átti hún samkvæmt bókun innanlandsflug þann 6. nóvember aftur til Reykjavíkur og heim til Kaupmannahafnar daginn eftir. Þegar hún þurfti svo að flýta för sinni til Reykjavíkur kostaði breytingin hana rúmlega 21.000 krónur. Guðrún Björk er að vonum ósátt við það verð sem upp er gefið. „Þegar ég tjáði svo starfsmanninum að ég ætlaði þá bara að sleppa því að fljúga þennan legg og koma mér til Keflavíkur með ódýrari hætti var mér tjáð að ef ég mætti ekki í innanlandsflugið þann 6. nóvember myndi millilandaflugið til Kaupmannahafnar detta út. Þetta er auðvitað ekki bjóðandi fólki,“ segir Guðrún Björk. „Ef ég hefði keypt innanlandsflugið sér hefði það kostað mig á milli þrjú og sjö þúsund krónur að breyta innanlandsfluginu.“Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi IcelandairGuðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir þetta eiga sér eðlilegar skýringar en telur þó að flugfélagið þurfi kannski að endurskoða þetta gjald. „Hér eru keyptar fjórar flugferðir í einum pakka með þeim skilmálum að ef farþeginn mætir ekki í flug, þá telst hann hafa afþakkað þann hluta pakkans sem á eftir kemur. Vilji hann breyta ferð sinni, greiðir hann breytingagjald, og skiptir þá ekki máli hvaða fluglegg er um að ræða. Ferðaskilmálarnir í svona flugi gilda hvert sem leiðin liggur til t.d. Bandaríkjanna, Evrópu eða til Akureyrar og henta flestum. Þetta dæmi er hins vegar glögglega tilefni til þess að endurskoða framkvæmdina varðandi þessa skilmála hér innanlands,“ segir Guðjón.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira