Verslunareigendur á Sikiley gerðu uppreisn gegn mafíunni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. nóvember 2015 12:58 Lögreglan á Ítalíu hefur handtekið 22 mafíósa eftir að verslunareigendur neituðu að greiða þeim svokallaða verndarfjárhæð. Vísir/EPA
Lögreglan á Sikiley hefur handtekið 22 manns grunaða um mafíustarfsemi. Voru þeir handteknir eftir að eigendur fyrirtækja í Bagheria gerðu uppreisn og neituðu að borga mönnunum svokallaða verndarfjárhæð.Samkvæmt fréttaveitu AP voru mennirnir meðlimir í Cosa Nostra mafíunni í Bagheria, litlum bæ í nágrenni Palermo. Mennirnir stunduðu fjárkúgun og hótuðu eigendum fyrirtækja í bænum ofbeldi myndu eigendur þeirra ekki greiða sérstaka verndarfjárhæð. Eigendur byggingarfyrirtækja, matvörubúða, kaffihúsa og annarra fyrirtækja fengu hinsvegar nóg eftir að hafa orðið innblásnir af herferð sem ungir fyrirtækjaeigendur á eynni hrundu af stað fyrir nokkrum árum þar sem markmiðið var að berjast gegn spillingu. Höfðu fyrirtækjaeigendur í Bagheria samband við lögreglu sem handtók 22 menn við rannsókn málsins. Rannsóknargögn lögreglu gefa til kynna að hinir grunuðu hafi nýtt fjárhæðirnar til að styðja við fjölskyldur fangelsaðra mafíósa.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Erlent Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Innlent Fleiri fréttir Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Sjá meira