Ríkislögreglustjóri gegn áreitni og einelti Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 3. nóvember 2015 06:00 Ríkislögreglustjóri tekur samskiptavanda innan lögreglunnar föstum tökum. vísir/einar
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur ráðist í fjölmargar aðgerðir gegn einelti og kynferðislegri áreitni í öllum embættum lögreglu á landinu. Haraldur segist hafa ákveðið að fylgja tillögum Finnborgar Salome Steinþórsdóttur vegna niðurstaðna úr rannsókn hennar á vinnumenningu lögreglunnar. Rannsókn hennar sýndi að tæplega 18% lögreglumanna töldu sig þolendur eineltis í starfi, 25% kvenna og 17% karla. Tæplega 31% kvenna og 4% karla í lögreglunni töldu sig þolendur kynferðislegrar áreitni í lögreglunni. Lögreglumenn sem tóku þátt í rannsókninni bentu á að gerendur væru samstarfsmenn og yfirmenn. Vandinn er talinn alvarlegur og til viðbótar við aðgerðir ríkislögreglustjóra ákvað innanríkisráðuneyti að fá vinnusálfræðing til að greina samskiptavanda í yfirstjórn lögreglunnar. Í viðtölum við vinnusálfræðinginn Leif Geir Hafsteinsson sögðu lögreglumenn frá óviðeigandi ummælum vinnufélaga sinna. Ummælin vísuðu í kynferði og viðkomandi upplifðu þau sem áreitni. Enn hafa niðurstöður greiningar Leifs ekki verið birtar en heimildir Fréttablaðsins herma að rót vandans sé valdabarátta í yfirstjórn lögreglunnar. Meðal aðgerða ríkislögreglustjóra var að koma á fót fagráði lögreglunnar. Fagráðið er ráð óháðra fagaðila og tekur til umfjöllunar mál er varða beina og óbeina mismunun, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti innan lögreglunnar. Þá hefur verið haldið námskeið í stjórnendaþjálfun fyrir stjórnendur innan lögreglunnar. Námskeiðið var haldið í apríl 2015 í samvinnu við Lögregluskóla ríkisins. Ríkislögreglustjóri gaf einnig út leiðbeinandi verklagsreglur um einelti sem voru sendar á alla lögreglustjórana 1. apríl síðastliðinn. Þá var ákveðið að endurútgefa jafnréttis- og framkvæmdaáætlun lögreglunnar og á næstu dögum fá starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fræðslu um góð samskipti á vinnustað, einelti og eðli ágreinings. Fræðslufyrirlestrarnir hafa verið haldnir í öllum öðrum lögregluembættum á landinu á haustmánuðum en það er mannauðsráðgjafarfyrirtækið Hugtak sem hefur haldið utan um þá. Þá ákvað ríkislögreglustjóri að endurskoða siðareglur lögreglunnar. Í endurskoðuðum siðareglum verður sérstök áhersla lögð á siðferði og samskipti á vinnustaðnum. Að auki verður unnið að því að draga úr neikvæðum viðhorfum sem hafa mælst gagnvart konum í lögreglunni. Til viðmiðs verða siðareglur stjórnarráðsins og Íþrótta- og ungmennafélags Keflavíkur.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira