Tímamótakosningar en meingallaðar Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. nóvember 2015 07:00 Nóbelsverðlaunahafinn Aung San Suu Kyi á fjölmennum kosningafundi í byrjun mánaðarins. Fréttablaðið/EPA
Engar áreiðanlegar skoðanakannanir hafa verið gerðar í Búrma, eða Mjanmar eins og landið er einnig nefnt, fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða á morgun. Mikil óvissa ríkir því um úrslitin þótt Aung San Suu Kyi og flokkur hennar, Lýðræðisfylkingin, njóti greinilega mikilla vinsælda. Hvernig sem fer, þá verða þetta tímamótakosningar því þetta er í fyrsta sinn í aldarfjórðung sem Lýðræðisfylkingin, helsta afl stjórnarandstöðunnar, tekur þátt í þingkosningum í landinu. Herforingjastjórnin, sem stjórnað hefur landinu áratugum saman, hefur staðið fyrir ýmsum umbótum á síðustu árum, bæði efnahagslegum og pólitískum. Herforingjastjórnin þykir samt ekki líkleg til að sleppa alveg hendinni af stjórn landsins, jafnvel þótt svo fari að Lýðræðisfylkingin vinni stóran sigur. Stjórnin hefur sagt að of hraðar breytingar geti leitt af sér ólgu í landinu. Framkvæmd kosninganna hefur auk þess verið gagnrýnd, meðal annars fyrir ónákvæma skráningu á kjörskrá. Dæmi eru þess að látið fólk sé á kjörskránni og margir sprelllifandi kjósendur eru ekki á skránni. Og hvernig sem úrslitin verða, þá verður Suu Kyi hvort eð er óheimilt að gegna forsetaembætti vegna tengsla hennar við Bretland, en báðir synir hennar eru breskir ríkisborgarar. Samkvæmt stjórnarskrá landsins, sem herforingjastjórnin samdi, má enginn gegna forsetaembættinu ef maki eða börn eru erlendir ríkisborgarar.Forseti landsins, hefur komið á ýmsum lýðræðisumbótum síðustu árin. Fréttablaðið/EPAAuk þess hefur herforingjastjórnin fyrirfram tryggt sér fjórðung allra þingsæta hið minnsta, alveg óháð úrslitunum. Það þýðir að Lýðræðisfylkingin nær ekki meirihluta nema með því að tryggja sér meira en tvö af hverjum þremur þeirra þingsæta, sem í raun er kosið um. Þetta þýðir líka að Lýðræðisfylkingin og aðrir stjórnarandstöðuflokkar geta ekki gert neinar breytingar á stjórnarskrá landsins, jafnvel þótt herforingjastjórnin fái einungis þessi 25 prósent þingsæta, því til þess að gera slíkar breytingar þarf meira en 75 prósent atkvæða á þingi. „Ekki er hægt að líta svo á að kosningar séu sanngjarnar ef 25 prósent þingsæta eru afhent hernum, og þeim flokki sem hann styður, áður en eitt einasta atkvæði hefur verið greitt,“ segir Brad Adams, framkvæmdastjóri Asíudeildar mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. Hann segir það að vísu jákvætt, að fjölmennir kosningafundir hafi verið haldnir hindrunarlaust. Hins vegar nægir það ekki til að bæta upp fyrir kosningakerfi, sem kerfisbundið styður einn flokk umfram aðra. Suu Kyi segist engu að síður ætla sér stóran hlut við stjórn landsins að kosningunum loknum, vinni flokkur hennar nægilegan sigur. „Ég mun verða æðri forsetanum,“ sagði hún og lætur það ekki trufla sig, þótt hún fái ekki forsetaembættið. Leiðtogi í meira en aldarfjórðungAung San Suu Kyi hefur verið leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma í meira en aldarfjórðung, eða allt frá því hún sneri aftur heim árið 1988 eftir að hafa dvalist langdvölum erlendis. Lýðræðisfylking hennar vann stórsigur í þingkosningum árið 1990, en herforingjastjórnin í landinu tók ekki mark á þeim úrslitum. Suu Kyi var sett í stofufangelsi og var það meira og minna næstu tvo áratugina, með fáeinum hléum. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1991 en komst ekki til að taka við þeim fyrr en árið 2012, 21 ári síðar. Eftir að herforinginn Thein Sein varð forsætisráðherra landsins árið 2007 hófst hann fljótlega handa við að gera ýmsar lýðræðisumbætur og lét meðal annars pólitíska fanga lausa í stórum stíl. Árið 2010 efndi herforingjastjórnin aftur til þingkosninga, en Lýðræðisfylkingin sá ekki ástæðu til að taka þátt í þeim, enda var Suu Kyi enn í stofufangelsi. Suu Kyi bauð sig hins vegar fram til þings í aukakosningum árið 2012 og hefur setið á þingi síðan. Lýðræðisfylking hennar tekur þátt í þingkosningunum á morgun, í fyrsta sinn í aldarfjórðung.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent