Rússneska réttrúnaðarkirkjan ætlar að bjóða upp á réttrúnaðarinternet Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. nóvember 2015 16:34 Rússneska réttrúnaðarkirkjan ætlar að bjóða upp á þráðlaust internet í kringum kirkjur sínar. Visir/Getty
Rússneska réttrúnaðarkirkjan hefur í bígerð að bjóða upp á svokallað þráðlaust réttrúnaðarinternet í grennd við kirkjur og almenningssvæði í Moskvu. Presturinn Roman Bogdasarov, yfirmaður kirkjutengsla hjá Rússnesku réttrúnaðarkirkjunni segir að internetið bjóði á margar hættur fyrir notendur þess, það sé fullt af áróðri fyrir aðrar kirkjudeildir og ISIS auk þess sem þar megi finna klámfengið efni og brenglaðar útgáfur af sögulegum atburðum. Því ætlar rússneska réttrúnaðarkirkjan að bregðast við með því að bjóða upp á aðgengi að internetinu. Leiðtogar kirkjunnar ætla sér þó að stýra því hvaða efni verði hægt að nálgast. „Við ætlum ekki að takmarka aðgang að vefsíðum, eingöngu að eyða öllu því sem er vont,“ sagði Bogdasarov en þeir sem tengjast hinu þráðlausa neti munu t.d. ekki geta nálgast neitt efni sem tengist samkynhneigð. Bogdasarov sagði þó að þetta réttrúnaðarinternetið muni ekki eingöngu bjóða upp á vefsíður tengdar kirkjunni heldur einnig vinsælt efni á borð við kvikmyndir svo lengi sem þær byggi á gömlum og traustum gildum. Kirkjan hyggst setja upp netið í samvinnu við borgaryfirvöld í Moskvu og hafa þau tekið vel í bón kirkjunnar. Stefnt er að því að netið verði sett upp við kirkjur, torg og listasöfn og verður aðgangur að því frír og opinn öllum.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Fleiri fréttir Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Sjá meira