Maðurinn með ljótu grímuna og alþýðlega nafnið Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 8. nóvember 2015 20:00
Gunnar Hansen leikari er látinn. Hann sló í gegn með túlkun sinni á hinum hryllilega Leðurfési árið 1974 í kvikmyndinni um keðjusagamorðin í Texas. Gunnar var mikill áhugamaður um íslensk fræði en tilþrif hans á hvíta tjaldinu átti eftir að hafa áhrif á heila kynslóð kvikmyndagerðarmanna.Texas Chainsaw Massacre vakti athygli víða, þar á meðal á ritstjórn Vísis.Gunnar fæddist í Reykjavík árið 1947. Sjö ára fluttist hann til Bandaríkjanna ásamt foreldrum sínum. Hann stundaði nám Bangor í Maine og framhaldsnám í Austin í Texas. Lokaverkefni hans var ritgerð um ljóð Davíðs Stefánssonar. Í Austin kynntist Gunnar kvikmyndagerð. Hann var stór og mikill maður og þótti henta vel fyrir hlutverk í lítilli sjálfstæðri kvikmynd. Þessi kvikmynd var frumsýnd árið 1974 undir heitinu Texas Chainsaw Massacre, eða Keðjusagamorðin í Texas. Túlkun Gunnars á mannætunni Leatherface vakti mikla athygli. Þar elti Gunnar hóp ungmenna og murkaði úr þeim lífið með keðjusög. Í dag Texas Chainsaw Massacre álitin ein hryllilegasta og umdeildasta hryllingsmynd allra tíma.Fréttablaðið Vísir fjallaði um velgengni Gunnars.Fréttablaðið Vísir fjallaði um myndina árið 1977. Blaðamaður benti á að einn leikari myndinni héti því alþýðlega nafni Gunnar Hansen. Síðar komust blaðamenn Vísis að því að Gunnar var íslenskur. Vísir gaf myndinni henni tvær stjörnur. Gunnar fékk hrós en gagnrýnandi hefði þó viljað sjá íslending í geðslegra hlutverki í Hollywood-mynd. Texas Chainsaw Massace átti eftir að hafa mikil áhrif á nýja kynslóð kvikmyndagerðarmanna. Þar á meðal Erling Óttar leikstjóra sem kynntist Gunnari í sumar.Kvikmyndin fékk tvær stjörnu í fréttablaðinu Vísi„Við fengum okkur kaffi saman og spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Það var mjög gaman fyrir mig að vera að byrja að gera hryllingsmyndir að fá að tala við mann sem er partur af einni alræmdustu hryllingsmynd allra tíma,“ segir Erling. „Hann var mjög viðkunnalegur maður og vingjarnlegur.“ Gunnar lést á heimi sínu í gær en banamein hans var krabbamein. Hann fékkst við ritstörf og kennslu árum saman. Erling hvetur fólk til að setja Texas Chainsaw Massacre í tækið í kvöld. „Algjörlega og taka eftir því hvað það er mikill kraftur í þessari mynd. Hún er hrá og gróf en stenst tímans tönn,“ segir Erling.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira