Samþykktu aðskilnaðaráætlun í óþökk stjórnvalda Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. nóvember 2015 16:20 Starfandi forseti Katalóníu Arthur Mas yfirgefur hér héraðsþingið eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir í dag. VÍSIR/AP
Héraðsþingið í Katalóníu samþykkti í dag aðgerðaráætlun sem miðar að því að héraðið öðlist sjálfstæði frá Spáni árið 2017. Áætlunin var samt þykkt með 72 atkvæðum gegn 63 í þinginu sem hefur aðsetur í Barselóna. Ríkisstjórn Spánar brást fljótt við eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir. Hún hefur þegar lýst því yfir að samþykktinni verði vísað til stjórnarskrárdómstóls landsins sem áður hefur komið í veg fyrir fyrri aðskilnaðartilraunir héraðsmanna. Þetta kom fram í sjónvörpuðu máli forsætisráðherra landsins, Mariano Rajoy. „Katalónía er ekki að fara neitt, ekkert mun brotna,“ hefur CBS eftir honum. Þá bætti hann við að hann hefði í huga að mynda bandalag með formanni sósíalistaflokksins, Pedro Sanchez, sem hefur verið einn dyggast andstæðingur sjálfstæðis Katalóníu á síðustu misserum.Hægrið og vinstri sammæltust um sjálfstæði Ákvörðun héraðsstjórnarinnar kemur í kjölfar kosningasigurs bandalags sjálfstæðissinna í september síðastliðnum. Bandalagið, sem kallast Sameinuð um já, samstarf hægriflokkanna Lýðræðissamkomu Katalóníu og Demókrataflokks Katalóníu annars vegar og vinstri flokkanna Vinstri lýðveldisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar hins vegar. Flokkarnir sammældust fyrir kosningarnar um að leggja til hliðar sín hefðbundnu stefnumál til að sameina krafta sína til að tryggja sjálfstæði. Íbúar Katalóníu gengu að kjörborðinu í nóvember í fyrra til að greiða atkvæði um sjálfstæði í óformlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. 80 prósent kjósenda voru hlynnt sjálfstæði en stjórnvöld í Madríd viðurkenndu ekki lögmæti kosninganna og hafa heitið því að skjóta öllum yfirlýsingum um sjálfstæði til dómstóla. Forsætisráðherrann Rajoy er þeirrar skoðunar að sjálfstæði Katalóníu varði alla Spánverja og því væri réttast að allir íbúar Spánar fengju að kjósa um sjálfstæði Katalóníu. Spán munar miklu um aðild Katalóníu þar sem héraðið, sem telur 16 prósent íbúa Spánar, telur 20 prósent af þjóðarframleiðslu Spánar.
Tengdar fréttir Já-hreyfingin lýsir yfir sigri í kosningunum í Katalóníu Flokkarnir sem vilja lýsa yfir sjálfstæði Katalóníu ná meirihluta á héraðsþingi Katalóníu. 27. september 2015 21:30 Stefna á sjálfstæði frá Spáni eftir 18 mánuði Bandalag sjálfstæðissinna í Katalóníu vann sigur í héraðsþingkosningum í gær. 28. september 2015 07:00 Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Sjá meira
Já-hreyfingin lýsir yfir sigri í kosningunum í Katalóníu Flokkarnir sem vilja lýsa yfir sjálfstæði Katalóníu ná meirihluta á héraðsþingi Katalóníu. 27. september 2015 21:30
Stefna á sjálfstæði frá Spáni eftir 18 mánuði Bandalag sjálfstæðissinna í Katalóníu vann sigur í héraðsþingkosningum í gær. 28. september 2015 07:00