Árásina má rekja til fíkniefnaneyslu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 21. október 2015 17:19 Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan um miðjan ágúst. vísir/heiða
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður, grunaður um líkamsárás, sæti áfram gæsluvarðhaldi til 9. nóvember næstkomandi. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 17. ágúst síðastliðnum. Hinn grunaði ávarpaði héraðsdóm og lýsti því yfir að gjörðir hans mætti að mestu rekja til fíkniefnaneyslu hans. Hann sæi eftir því sem hann gerði og teldi það rangt. Hann ætli að snúa við blaðinu, hætta neyslu fíkniefna og stefna að betra lífi. Hann hefði setið lengi í gæsluvarðhaldi og vildi aðeins komast út í þann stutta tíma þar til hann hlyti dóm. Verjandi mannsins benti á læknavottorð sem ekki hafði legið fyrir er Hæstiréttur úrskurðaði skjólstæðing hans síðast í gæsluvarðhald þann 24. ágúst síðastliðinn. Einnig væri allt útlit fyrir að framburður brotaþola um frelsissviptingu væri ekki á rökum reistur. Ætti því að létta gæsluvarðhaldinu. Þeim málflutningi var hafnað og staðfesti dómurinn niðurstöðu héraðsdóms.Réðst á par með hnífi og hamri Maðurinn er grunaður um að hafa, ásamt öðrum manni, rutt sér inn í íbúð í Breiðholti og veist að stúlku og kærasta hennar vegna meints fíkniefnastuldar. Báðir mennirnir eiga sögu um ofbeldisbrot áður. Fórnarlömbin kölluðu eftir aðstoð lögreglu en þá voru árásarmennirnir á bak og brott. Þau voru með skurð í andliti eftir hníf og kærastinn var einnig með skurð á fæti og sagðist hann einnig hafa verið laminn með hamri. Mennirnir tveir voru handteknir í íbúð annars þeirra daginn eftir og við leit þar fundust fartölva og gsm sími sem hafði verið tekinn af parinu. Þar að auki fundust blóðugar buxur í óhreinu taui og einnig blóðugur bolur. Lögregluþjónar fundu einnig hníf með blóðkámi í vasa eins þeirra, dúkahníf með blóðkámi í stofu íbúðarinnar og klaufhamar í gluggakistu svefnherbergis. Þann 12. júní síðastliðinn var maðurinn, sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald, dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Þá veittist hann að manni með hnífi og skar hann á framhandlegg og kinn. Brotaferill hans nær allt til ársins 2005.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira