Læknaskortur regla ekki undantekning Svavar Hávarðsson skrifar 23. október 2015 09:00
Mönnun í stöður lækna á landsbyggðinni er stórt vandamál og svo hefur verið um langt árabil. Kjarasamningar lækna hafa þegar létt undir við að manna sérfræðistöður með læknum sem hafa verið búsettir erlendis en því fer fjarri að öll kurl séu komin grafar til að leysa úr þeim vanda sem birtist í kjaradeilum lækna á undanförnum árum. Efnismikið svar barst Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni Vinstri grænna, frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra á þriðjudag við fyrirspurn um horfur í mönnun heilbrigðisþjónustunnar. Stór þáttur í fyrirspurn Steingríms lýtur að stöðu og horfum í mönnunarmálum hjá heilbrigðisstofnunum í einstökum landshlutum. Þessu var svarað út frá upplýsingum sem heilbrigðisráðuneytið aflaði sér í september síðastliðnum frá heilbrigðisstofnunum í öllum heilbrigðisumdæmunum sjö – en það eru niðurstöðurnar utan höfuðborgarsvæðisins sem vekja sérstaka athygli. Alls staðar er viðvarandi vandamál að manna stöður lækna á sama tíma og léttara reynist að manna stöður annars heilbrigðisstarfsfólks. Virðist undirliggjandi að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni keppa ekki við þéttbýlið – sá slagur er tapaður og allar tilraunir til að snúa þessari þróun við hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Vandinn er því tilfinnanlegri eftir því sem lengra dregur frá suðvesturhorninu. Bráðabirgðamönnun með verktöku og öðrum afleysingum er sú leið sem oftast er farin – og er væntanlega kostnaðarsamari en hitt.Þorbjörn Jónsson, formaður LæknafélagsinsÞorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segir um þessar niðurstöður að fátt, ef nokkuð, komi þar á óvart – og staðfestir að stöður lækna við einstakar heilbrigðisstofnanir úti á landi hafa verið auglýstar árum saman án þess að um þær hafi verið sótt. Lausnin eins og áður sagði er verktaka – og styttri viðvera lækna á hverjum stað. Hins vegar leysir það aðeins vandamálið að hluta. „Það hlýtur að vera ákjósanlegast fyrir íbúana á þessum stöðum að hafa fastan lækni; einhvern sem þú þekkir og við hverja heimsókn sért þú ekki alltaf að byrja upp á nýtt,“ segir Þorbjörn. En er þetta vandamál sem verður einhvern tímann leyst? „Málið er, þó að það hafi ekki verið kannað vísindalega svo mér sé kunnugt, að yngri læknar hafa annað viðhorf til samspils vinnu- og frítíma. Margir læknar í gamla daga voru tilbúnir til að vera á mjög þéttum vöktum – þá voru til stöðvar þar sem einn læknir var alltaf á vakt. Eða tveir sem skiptu verkum á milli sín. Ég held að kröfur nútímans séu að yngri læknar vilji hafa betri aðgreiningu á sínum tíma,“ segir Þorbjörn. „Þessi stöðuga binding er mikið álag, og stofnanir, í skjóli þess að fjárveitingavaldið veiti það svigrúm, verða að vera tilbúnar til að koma til móts við það.“ Hvað varðar höfuðborgarsvæðið þá liggur fyrir að betur gengur að ráða íslenska lækna erlendis frá; þá einkum svæfingarlækna og fæðingar- og kvensjúkdómalækna samkvæmt upplýsingum Landspítalans. Vandi við að manna stöður krabbameinslækna teygir sig mörg ár aftur í tímann – enda hafa margir hætt störfum vegna aldurs eða flutt úr landi. Spurður um launaleiðréttinguna segir Þorbjörn það þurfa að koma í ljós hverjar efndirnar verða. Urgur sé t.d. í læknum vegna breytinga á Landspítalanum með vaktatilhögun. „Ég held að þetta sé brothætt ástand og kjarasamningurinn er lykilatriði,“ segir Þorbjörn en tekur fram að staðan í húsnæðis- og tækjamálum hjálpi ekki til. Tvö næstu ár fari í hönnun spítalans og hann ekki risinn fyrr en eftir sjö til átta ár. Sá tími jafngildi stórum hluta af starfsævi læknis sem kemur heim eftir sérnám um fertugt – og sami maður kunni jafnvel ekki á þau tæki sem fyrir eru af því að hann lærði að nota önnur mun nýrri.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira