Krónufólki stillt upp við vegg á landsfundi Snærós Sindradóttir skrifar 25. október 2015 13:44 Meirihluti sagði já á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Krónusinnuðum Sjálfstæðismönnum var stillt upp við vegg við afgreiðslu ályktunar á landsfundi í dag. Tillaga Efnahags- og viðskiptanefndar hljóðaði svo: „Íslenska krónan í höftum getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar ef Íslendingar vilja eiga þess kost að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni. Rétt er að hafist verði handa við að undirbúa upptöku myntar sem er gjaldgeng í alþjóðaviðskiptum í stað íslensku krónunnar. Með því að leggja krónuna niður gefst landsmönnum og fyrirtækjum í raun algert frelsi að ákveða hvaða gjaldmiðill hentar þeim best.“ Nokkur styr var um tillöguna fyrirfram á fundinum og svo fór að við upphaf umræðna um hana steig formaður nefndarinnar í pontu og lagði fram málamiðlunartillögu sem hljóðaði svo: „Kanna skal til þrautar upptöku myntar sem gjaldgeng er í alþjóðaviðskiptum í stað íslensku krónunnar og gefa landsmönnum og fyrirtækjum frelsi til að ákveða hvaða gjaldmiðill hentar þeim best.“ Fundarmenn höfðu þá val um frumtillöguna eða vægari málamiðlunartillögu sem samt gerði ráð fyrir að kanna upptöku annarrar myntar. Umræður voru í lágmarki um þessa tillögu. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og fjármálaráðherra, steig í pontu og sagðist styðja málamiðlunartillöguna en hann var samt myrkur í máli: „Menn skulu ekki gleyma því að ef menn taka upp aðra mynt og hafa ekki aðra lánveitendur til þrautavaða, hver ætlar þá að koma mönnum til aðstoðar?“ Málamiðlunartillagan var samþykkt með örfáum mótatkvæðum. Heimildir Vísis herma að búið hafi verið að ganga frá þessari málamiðlun á bak við tjöldin í gær svo ekki færi allt í háa loft á fundinum.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira