Rupert Murdoch og Jerry Hall rugla saman reytum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 26. október 2015 07:00 Rupert Murdoch er eigandi og stofnandi fjölmiðlafyrirtækisins News Corp. Nordicphotos/Getty
Fjölmiðlamógúllinn og milljarðamæringurinn Rupert Murdoch og fyrrverandi fyrirsætan og leikkonan Jerry Hall eru sögð eiga í ástarsambandi. Murdoch er 85 ára gamall og er eigandi og stofnandi fjölmiðlafyrirtækisins News Corp og eru hann og Hall sögð hafa verið kynnt af systur hans og frænku en fyrirsætan fyrrverandi er 59 ára gömul. Undanfarnar vikur hafa sögusagnir þess efnis að Murdoch og Hall væru par látið á sér kræla en nú er því haldið fram að parið muni koma opinberlega fram saman á heimsmeistarakeppninni í rugby sem fram fer þann 31. þessa mánaðar á Twickenham-leikvanginum í London.Jerry Hall á að baki farsælan feril sem fyrirsæta. Nordicphotos/GettyNáinn fjölskylduvinur Murdochs sagði í samtali við The Telegraph að hann væri afar hrifinn af Hall og það væri engin spurning um að þau væru par. Þau eiga að hafa eytt saman tíma nýlega í Kaliforníu auk þess sem þau nutu samneytis hvort annars á Broadway-söngleiknum Hamilton í New York. Murdoch á sex börn og hefur verið giftur þrisvar. Síðast Wendi Deng en þau skildu árið 2013 þegar orðrómur þess efnis að hún ætti í ástarsambandi við Tony Blair gekk fjöllunum hærra. Þær sögusagnir hafa þó aldrei verið staðfestar. Hall bjó með söngvaranum Mick Jagger frá árinu 1977 en þau slitu sambandinu árið 1999 og eiga saman fjögur börn. Fjölmiðlaveldið News Corp á meðal annars dagblöðin The Times, The Sunday Times, The Sun og The Wall Street Journal auk útgáfufyrirtækisins Harper Collins. Murdoch er þó einna þekktastur fyrir það að hafa verið stjórnarformaður fjölmiðlafyrirtækisins 21st Century Fox.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira