Fara ekki til Afganistans af öryggisástæðum Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 27. október 2015 06:00 Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Frétt ehf / Rósa Jóhannsdóttir „
Það er í það minnsta ákveðið að sveitin fer ekki til Afganistans, þar er öryggisástandið þannig að það þykir ekki forsvaranlegt að senda hana þangað,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Talið er að minnst 200 manns hafi farist í jarðskjálfta sem átti upptök sín í Afganistan í gær og hafði víðtæk áhrif í Pakistan og fannst á Indlandi. Um 150 manns týndu lífi í Pakistan og meira en fimmtíu í Afganistan. Skjálftinn var 7,5 gráður á richter.Ríkisstjórn Íslands sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þar sem lýst var yfir ákvörðun hennar um að senda íslensku alþjóðabjörgunarsveitina á vettvang verði þess óskað. „Sveitin er á því sem kallast „standby“. Þá er verið að yfirfara búnað og gera sig tilbúna,“ segir Ólöf. „Nú bíðum við eftir því hvort það kemur beiðni um aðstoð frá skaðalöndunum Afganistan eða Pakistan. En það eru þó ýmis mál sem þarf að skoða. Það er öryggisástandið og annað slíkt,“ segir Ólöf. Ekki þykir ekki ráðlegt að senda sveitina til Afganistans. „Við vitum ekki alveg með Pakistan. Við erum í rauninni að bíða eftir upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum varðandi öryggið.“ Björgunarstarf þykir erfitt á skjálftasvæðinu þar sem það er mjög fjalllent. Yfirvöld í Afganistan telja að tala látinna muni hækka þegar björgunaraðgerðir ná til fjallaþorpa en talið er að þau hafi orðið verst úti.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira