Innlent

Bein útsending: 67. þing Norðurlandaráðs í Reykjavík

Þingið fer fram í Hörpu.
Þingið fer fram í Hörpu. Vísir/GVA
67. þing Norðurlandaráðs verður sett í Hörpu í Reykjavík klukkan 14:30 í dag. Sent er beint út frá fundinum sem mun standa yfir fram á fimmtudag.

Norrænu forsætisráðherrarnir munu ræða möguleika á auknu og nánara Norðurlandasamstarfi klukkan 14:45. Í framhaldinu fer fram umræða um Norðurland án landamæra.

Dagskrá þingsins má sjá hér að neðan.


Þriðjudagurinn 27. október

14:30 - 14:45

1. Þingsetning

  • Farið yfir þátttakendalista
  • Dagskrá samþykkt
  • Reglur um þingsköp á 67. þingi Norðurlandaráðs, Skjal 2b/2015


14:45 - 16:30

2. Norrænn leiðtogafundur

Þemaumræður með norrænu forsætisráðherrunum um möguleikann á auknu og nánara Norðurlandasamstarfi

16:30 - 17:00

3. Norðurlönd án landamæra

  • Skýrsla samstarfsráðherranna um afnám stjórnsýsluhindrana, Skjal 10/2015
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um aðgerðir til að vinna áfram með hugmyndina um norrænt sambandsríki, A 1633/presidiet



17:00 - 17:30

4. Áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2016


  • Forsætisráðherra Finnlands kynnir formennskuáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir 2016, Skjal 19/2015


Miðvikudagurinn 28. október

09:00 - 09:15

5. Atkvæðagreiðsla

  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um norrænt greiðslufyrirkomulag í öldrunarþjónustu sem veitir öldruðum valfrelsi, A 1596/välfärd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um norræna heilsugæslu án stjórnsýsluhindrana, A 1598/välfärd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um aðgerðir til að vinna áfram með hugmyndina um norrænt sambandsríki, A 1633/presidiet



09:15 - 09:45


6. Almennar umræður

  • Opin umræða með þátttöku gesta
  • Greinargerð samstarfsráðherranna 2015 (munnleg), Skjal 13/2015


09:45 - 10:45


7. Velferð á Norðurlöndum

  • Nefndarálit um ráðherranefndartillögu um breytingar á Samningnum um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir tiltekna starfsmenn innan heilbrigðiskerfisins og á sviði dýralækninga (Arjeplog-samningnum), B 304/velfærd
  • Skýrsla um norrænt samstarf um heilbrigðismál 2015, Skjal 5/2015, ; Áætlunin Sjálfbær norræn velferð, Skjal 4/2015
  • Skýrsla um norrænt samstarf um málefni fatlaðra – Norræna ráðið um málefni fatlaðra og framkvæmdaáætlun fyrir norrænt samstarf um málefni fatlaðra, Skjal 6/2015
  • Skýrsla um jafnréttismál 2015, Skjal 7/2015
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um að auka norrænt samstarf um reglur um au pair-vist í löndunum, A 1619/velfærd
  • Nefndartillaga um velferðarþjónustu í dreifbýli á Norðurlöndum, A 1622/velferd
  • Nefndartillaga um geðheilsu barna og ungmenna á Norðurlöndum, A 1643/velferd
  • Nefndartillaga um fullorðna sem búa við síðbúnar afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í æsku, A 1645/velferd
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um að auka þekkingu á fíknivanda og bæta meðferð við fíkn með samstarfi í norrænu rannsóknaneti, A 1644/välfärd
10:45 - 11:00

8. Sjálfbær Norðurlönd

  • Skýrsla um sjálfbæra þróun á árunum 2014–2015, Dokument 8/2015
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um að auka norrænt samstarf um að verja norrænar vatnsauðlindir, A 1618/miljö
  • Nefndartillaga um norrænt skilagjaldskerfi, A 1658/miljø


11:00 - 12:00

9. Fyrirspurnatími með norrænu umhverfisráðherrunum

14:00 - 16:30

10. Alþjóðastjórnmál

  • Hnattrænar áskoranir. Gestafyrirlesari er Christian Friis Bach, framkvæmdastjóri Efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna
  • Skýrsla utanríkisráðherranna (munnleg), skjal 14/2015
  • Skýrsla varnarmálaráðherranna (munnleg), Skjal 15/2015
  • Skýrsla um samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við Rússland, Skjal 17/2015
  • Forsætisnefndartillaga um viðmiðunarreglur Norðurlandaráðs um samstarf við sambandsþing og héraðsþing í Rússlandi, A 1659/præsidiet
  • Skýrsla um starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar sem varðar ESB, Skjal 9/2015
  • Skýrsla um aðgerðir Norrænu ráðherranefndarinnar gegn mansali 2015, Skjal 12/2015
  • Þingmannatillaga um að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki, A 1634/præsidiet
16:30 - 16:45

11. Atkvæðagreiðsla

  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um ráðherranefndartillögu um breytingar á Samningnum um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna (Arjeplog-samningnum), B 304/velfærd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um að auka norrænt samstarf um reglur um au pair-vist í löndunum, A 1619/velfærd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndartillögu um velferðarþjónustu í dreifbýli á Norðurlöndum, A 1622/velferd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndartillögu um geðheilsu barna og ungmenna á Norðurlöndum, A 1643/velferd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndartillögu um fullorðna sem búa við síðbúnar afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í æsku, A 1645/velferd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um að auka þekkingu á fíknivanda og bæta meðferð við fíkn með samstarfi í norrænu rannsóknaneti, A 1644/välfärd
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um að auka norrænt samstarf um að verja norrænar vatnsauðlindir, A 1618/miljö
  • Atkvæðagreiðsla um nefndartillögu um norrænt skilagjaldskerfi, A 1658/miljø
  • Atkvæðagreiðsla um forsætisnefndartillögu um viðmiðunarreglur Norðurlandaráðs um samstarf við sambandsþing og héraðsþing í Rússlandi, A 1659/præsidiet
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki, A 1634/præsidiet
16:45 - 18:00

12. Þekking og menning á Norðurlöndum

  • Skýrsla um norræna tungumálasamstarfið 2015, Skjal 11/2015
  • Nefndarálit um ráðherranefndartillögu um endurskoðun samþykkta um verðlaun Norðurlandaráðs,B 303/præsidiet
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um öfluga og frjálsa fjölmiðla á Norðurlöndum, A 1636/kultur
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um stofnun alþjóðlegrar, samískrar kvikmyndastofnunar (ISF) á Norðurlöndum, A 1637/kultur
  • Nefndarálit um þingmannatillögu um sameiginleg innkaup opinberra stofnana á Norðurlöndum, A 1605/næring
  • Nefndartillaga um Norrænu menningarskólatöskuna, A 1646/kultur


18:00 - 21:00

13. Nýjar þingmannatillögur lagðar fram

  • Þingmannatillaga um sameiginlegt átak gegn ofbeldi í nánum samböndum á Norðurlöndum, A 1650/välfärd (flutt af flokkahópi jafnaðarmanna)
  • Þingmannatillaga um sjónvarpsverðlaun Norðurlandaráðs, A 1669/presidiet (flutt af flokkahópi miðjumanna)
  • Þingmannatillaga um öryggismálaráðstefnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, A 1652/presidiet (flutt af flokkahópi hægrimanna)
  • Þingmannatillaga um stofnun norrænnar miðstöðvar um þátttöku borgaranna og lýðræðisþróun, A 1649/medborger (flutt af flokkahópi vinstri sósíalista og grænna)
  • Þingmannatillaga um aukna og sjálfbæra ferðaþjónustu á Norðurlöndum, A 1656/näring (flutt af flokkahópi jafnaðarmanna)
  • Þingmannatillaga um borgararéttindi á Norðurlöndum, A 1668/medborgar (flutt af flokkahópi miðjumanna)
  • Þingmannatillaga um að efla starfsemi norrænu skrifstofanna í Eystrasaltsríkjunum, A 1653/presidiet (flutt af flokkahópi hægrimanna)
  • Þingmannatillaga um stofnun styrkjasjóðs Norðurlandaráðs fyrir rannsóknarblaðamennsku, A 1661/præsidiet (flutt af Christian Juhl, flokkahópi vinstri sósíalista og grænna)
  • Þingmannatillaga um úttekt á úrgangsstraumum á Norðurlöndum, A 1662/miljø (flutt af flokkahópi jafnaðarmanna)
  • Þingmannatillaga um skrifstofu í Brussel fyrir Norðurlandaráð, A 1667/presidiet (flutt af flokkahópi miðjumanna)
  • Þingmannatillaga um umbótastarfið og fjárhagsáætlunarferlið, A 1654/presidiet (flutt af flokkahópi hægrimanna)
  • Þingmannatillaga um sameiginlegar aðgerðir gegn eltihrellingu á Norðurlöndum, A 1660/medborgar (flutt af flokkahópi jafnaðarmanna)
  • Þingmannatillaga um að auðvelda frjálst flæði vinnuafls milli Norðurlandanna, A 1665/presidiet(flutt af flokkahópi miðjumanna)
  • Þingmannatillaga um norræna stefnu til að draga úr fjölda fallslysa, A 1648/välfärd (flutt af flokkahópi jafnaðarmanna)
  • Þingmannatillaga um aðgerðir gegn mansali, A 1651/medborger (flutt af flokkahópi miðjumanna)
  • Þingmannatillaga um internetið og verndun einkalífs, A 1655/miljø (flutt af flokkahópi jafnaðarmanna)
  • Þingmannatillaga um bætt samstarf Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, A 1666/presidiet (flutt af flokkahópi miðjumanna)


Fimmtudagurinn 29. október

09:00 - 09:30

14. Fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2016

  • Nefndarálit um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2016, B 302/præsidiet; C 2/2015


09:30 - 10:00


15. Innri málefni og ársskýrslur Norðurlandaráðs

  • Forsætisnefndartillaga um nýja nefndatilhögun, A 1663/præsidiet; Skýrsla um umbótastarf hjá Norðurlandaráði 2014–2015, Skjal 20/2015
  • Skýrsla eftirlitsnefndar um starfsemi ársins 2015, Skjal 18/2015
  • Ársskýrsla Norðurlandaráðs 2014, Skjal 1/2015
  • Skýrsla til Norðurlandaráðs um endurskoðun ársreiknings ráðsins 2014, C 4/kk/2015
  • Skýrsla til Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar um endurskoðun á starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar 2014;

    Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar 2014, C 3/kk/2015
  • Skýrsla til Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar um endurskoðun á starfsemi Norræna menningarsjóðsins árið 2014, C 5/kk/2015


10:00 - 10:10


16. Endanleg afgreiðsla og viðhald á tilmælum og innri ákvörðunum fyrri ára

  • Endanleg afgreiðsla og viðhald á tilmælum og innri ákvörðunum fyrri ára, Skjal 16/2015

10:10 - 10:30

17. Atkvæðagreiðsla

  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um ráðherranefndartillögu um endurskoðun á reglum um verðlaun Norðurlandaráðs, B 303/præsidiet
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um öfluga og frjálsa fjölmiðla á Norðurlöndum, A 1636/kultur
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um stofnun alþjóðlegrar, samískrar kvikmyndastofnunar (ISF) á Norðurlöndum, A 1637/kultur
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um þingmannatillögu um sameiginleg innkaup opinberra stofnana á Norðurlöndum, A 1605/næring
  • Atkvæðagreiðsla um nefndartillögu um Norrænu menningarskólatöskuna, A 1646/kultur
  • Atkvæðagreiðsla um nefndarálit um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2016, B 302/præsidiet; C 2/2015
  • Atkvæðagreiðsla um forsætisnefndartillögu um nýja nefndatilhögun, A 1663/præsidiet


10:30 - 10:45

18. Kosningar 2016

  • Kosning forseta Norðurlandaráðs
  • Kosning varaforseta Norðurlandaráðs
  • Kosning fulltrúa í forsætisnefnd, fagnefndir og aðrar nefndir Norðurlandaráðs
  • Kosning formanna og varaformanna fagnefnda og eftirlitsnefndar Norðurlandaráðs
  • Kosning fulltrúa í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingabankans
10:45 - 10:55

19. Áætlun Norðurlandaráðs fyrir árið 2016

  • Ræða nýkjörins forseta


10:55 - 11:00


20. Þingslit

  • Ákvörðun tekin um tíma og staðsetningu næsta þings



Fleiri fréttir

Sjá meira


×