Prestar missi tekjur af hlunnindum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 29. október 2015 07:00 Agnes M. Sigurðardóttir.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup þjóðkirkjunnar, mælti á Kirkjuþingi fyrir tillögu sem þýðir að prestar sem taka við prestssetursjörðum eftir næstu áramót fái ekki tekjur af hlunnindum jarðanna ef þau krefjast ekki vinnuframlags þeirra. Þá fái núverandi prestar á prestssetursjörðum óskiptar hlunnindatekjur upp að 720 þúsund krónum, viðkomandi sókn næstu 720 þúsund krónur og síðan skipta þessir aðilar tekjum umfram það til helminga. „Lagt er til að kirkjuþing 2015 samþykki að helmingur af tekjum fyrirhafnarlítilla hlunninda af jörðum og prestssetursjörðum í eigu kirkjumálasjóðs, renni framvegis til sóknar þeirrar þar sem jörðin er, enda sé kirkja á jörðinni í umsjá sóknarinnar. Þá er sömuleiðis lagt til að þingið samþykki að þegar prestsembætti eru auglýst, sem prestssetursjörð fylgir, skuli, þar sem það á við, fyrirhafnarlítil hlunnindi undanskilin,“ segir í tillögunni sem kemur frá starfshópi sem biskup skipaði í fyrra. Í greinargerð starfshópsins segir um núverandi fyrirkomulag að hlunnindagreiðslurnar séu barn síns tíma og eigi ekki við lengur. Þær byggi ekki á sanngirnissjónarmiðum og séu úr takti við aðra umbun á vegum opinberra aðila. Í tillögu biskups segir að til greina gæti komið að Kirkjuþing skipaði nefnd til að fjalla sérstaklega um málið. Og það varð niðurstaðan á Kirkjuþinginu sem í gær var frestað fram til næsta árs: „Kirkjuþing 2015 samþykkir að kirkjuráði verði falið að skipa þriggja manna starfshóp sem skoði málið í tengslum við stefnumörkun þjóðkirkjunnar um eignir og eignastýringu. Starfshópurinn hafi til hliðsjónar þær skýrslur sem unnar hafa verið um eignir þjóðkirkjunnar undanfarin ár,“ segir á ályktun Kirkjuþings.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira