Auglýsir eftir nýra fyrir systur sína á Facebook Jakob Bjarnar skrifar 29. október 2015 12:46 Fjölskylda Bryndísar sem tekin er árið 2011. Börn hennar þrjú eru með á myndinni auk eiginmanns hennar.
Sigríður María Jónsdóttir hefur auglýst eftir nýra fyrir systur sína Bryndísi Jónsdóttur. Hún setti inn ákall til vina sinna á Facebook undir yfirskriftinni: „Áttu nýra til að gefa Bryndísi Jónsdóttur?“ Síminn hefur ekki stoppað, segir Sigríður María í samtali við Vísi. Færsla Sigríðar Maríu hefur vakið mikla athygli en þar greinir frá því að Bryndís hafi verið að berjast við erfið veikindi frá árinu 2001. „Nokkuð lengi hefur hún verið með skerta nýrnastarfsemi og nú er svo komið að nýru hennar eru nánast hætt að starfa. Því er nokkuð ljóst að Bryndís þarf á nýju nýra að halda. Því miður hefur ekki fundist nýra sem passar hjá fjölskyldu og vinum. Næsta skref verður að Bryndís þarf að vera föst í nýrnavél 3 daga í viku til að lifa af þar til nýra finnst.“ Heilsa Bryndísar er orðin mjög slæm og ekki víst að hún geti beðið á löngum biðlista. „Því höfum við ákveðið að stíga þau þungu skref að óska opinberlega eftir nýra. Aðalatriðið er að nýrnagjafi sé í blóðflokki O.“ Og Sigríður María biðlar til vina sinna og kunningja: „Ef þið getið lagt okkur lið og bjargað lífi Bryndísar hafið samband við okkur í gegnum facebook eða í síma 865 1887, 863 6309.“ Sigríður María segir viðbrögðin hafa verið afar góð, miklu betri en hún þorði að vona. „Alveg ótrúleg. Ég hef verið á fullu í símanum og hef verið að fá skilaboð.“Viðbrögðin hafa verið mikil og Sigríður María hefur ekki við að svara símanum og skilaboðum.En, staðan núna?Þau eru nú að bíða með að setja hana í vél, átti að fara í ágúst en tafðist vegna verkfallsins. Var sett á lyf sem átti að halda henni góðri. Hún er það veik að hún ætti að vera komin í vélina. Ekki mikið að geta hugsað um fjölskyldu sína.“ Bryndís, sem fædd er 1977, er menntaður leikskólakennari, hún hefur lokið uppeldisfræði en er nú öryrki. En, málið er ekki einfalt. Því ekki er nóg að einhver gefi sig fram sem er til í að gefa nýra. „En það sem þau vilja á Landsspítalanum er að það sé einhver kunningsskapur, einhver tengsl. Ég veit ekki af hverju það er. Kona fyrir ári síðan sem auglýsti í sjónvarpinu, en það var stoppað eftir það. Vilja helst að það sé vinur eða ættingi. sem er fáránlegt því það eru svo margir á biðlista, og það væri hægt að stytta hann, kannski ,ef það væri hægt að rýmka þessar reglur. Ekkert allir sem komast af þessum biðlista.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira