Glamour

Fatalína úr smiðju frönsku ritstýrunnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Carine Roitfeld fyrrum ritstjóri franska Vogue og eigandi CR Fashion Book, hefur hannað fatalínu fyrir japanska fatarisann Uniqlo.

Línan, sem var kynnt á nýliðinni tískuviku í París, þykir endurspegla stíl Roitfeld vel og vera í senn kynþokkafull og praktísk. Hún inniheldur 40 mismunandi hluti, þar á meðal kápu í dýramynstri, leðurpils, stóra frakka og silki klúta.



Til að ýkja enn frekar áhrifin af persónulegum stíl Roitfeld var Lexi Boling fengin til að sitja fyrir í herferðinni en hún þykir líkjast Roitfeld mikið. Steven Meisel var á bakvið myndavélina. 

Búist er við góðum viðtökum á línunni og því eins gott að vera búin að gera ráðstafanir þegar hún kemur á netið og í verslanir þann 29. október næstkomandi. Þetta samstarf lofar góðu að mati Glamour.

 
All about ...me @uniqlo #stevenMeisel @lexiboling

A photo posted by Carine Roitfeld (@carineroitfeld) on Oct 12, 2015 at 6:09pm PDT


Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.





×