Þrír Ísraelar féllu og yfir tuttugu særðust í árásum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. október 2015 07:00 Rétttrúnaðargyðingar syrgja fallinn félaga sem lést þegar árásarmaður keyrði hann niður og stakk hann til bana. Nordicphotos/AFP
Hrina árása skall á höfuðborg Ísraels, Jerúsalem, í gær. Þrír féllu og að minnsta kosti tuttugu særðust. Frá þessu greindi ísraelska lögreglan í gær. Tveir farþegar voru myrtir þegar jafn margir árásarmenn réðust inn í strætisvagn í borginni og skutu menn og stungu áður en þeir féllu fyrir hendi lögreglu. Þá féll annar Ísraeli eftir að hafa verið keyrður niður af Palestínumanni og stunginn í hverfi rétttrúnaðargyðinga í borginni. Að auki lést einn Palestínumaður í borginni Betlehem í gær eftir átök við lögreglu. Lögregla í Ísrael sagði í tilkynningu sinni í gær að tugir Ísraela lægju í valnum eftir mikla öldu stunguárása Palestínumanna undanfarnar vikur. Þá segir í tilkynningunni að álíka margir árásarmenn hafi fallið og sautján almennir palestínskir borgarar hið minnsta. „Ísraelsríki mun ná sér niðri á morðingjunum. Þeim sem reyna að myrða og öllum þeim sem leggja þeim lið,“ sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, er hann lofaði hertum áherslum í öryggismálum á ísraelska þinginu í gærdag. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma á friði,“ sagði forsætisráðherrann. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, kennir Ísraelsmönnum hins vegar um átökin. Í gær sagði Abbas ísraelsk stjórnvöld og ísraelska landtökumenn eiga sökina. Netanjahú svaraði Abbas þá fullum hálsi og bað hann um að „hætta að ljúga“. En á meðan ráðamenn kepptust við að kenna hvorir öðrum um og almenningur syrgði tóku Hamas-samtökin fréttum gærdagsins fagnandi. „Við lofum hetjudáðirnar í Jerúsalem og tökum ofan fyrir hetjunum sem bera ábyrgð á þeim,“ sagði í tilkynningu samtakanna.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Sjá meira