Viðskipti innlent

Vilja ná 240 hluthöfum með hópfjármögnun

Jón Hákon Haldórsson skrifar
Elín Þorsteinsdóttir segir að hver B-hluthafi geti skráð sig fyrir að minnsta kosti 100 þúsund króna hlut.
Elín Þorsteinsdóttir segir að hver B-hluthafi geti skráð sig fyrir að minnsta kosti 100 þúsund króna hlut. Fréttablaðið/Pjetur
Fyrsta húðvörulínan frá TARAMAR kemur á markað í næstu viku. Eigendur fyrirtækisins fjármagna framleiðslu og markaðssetningu með hópfjármögnun. Þátttakendur í þeirri fjármögnun geta gerst B-hluthafar í fyrirtækinu og skrá sig fyrir hlut að lágmarki 100 þúsund krónur.

„Þessi leið hefur gert okkur kleift að koma vörunni á markað án þess að vera með stóran ráðandi fjárfesti sem myndi vilja hafa mikil áhrif á það sem er að gerast á þessu stigi. Við erum að fara mjög óvanalegar leiðir í rannsóknum og þróun og mikilvægt að þær leiðir fái að sanna sig áður en fagfjárfestar koma að fyrirtækinu,“ segir Elín Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, um hópfjármögnunina.

Elín segir að þessi leið til að fjármagna rekstur fyrirtækisins sé mikilvæg til þess að fylgja gildum fyrirtækisins og hugmyndafræði. Hún segir að nú þegar sé kominn stór hópur af hluthöfum, en stefnt er að því að stækka hann enn frekar og horft er til þess að B-hluthafar verði í kringum 240. „En síðan þegar við ætlum að stíga næstu skref og förum inn á erlenda markaði þá munum við þurfa stærri fjárfesta,“ segir hún.

Elín segir að B-hluthafar njóti allra sömu hagsmuna og venjulegir hluthafar en þeir beri ekki fjárhagslega né stjórnunarlega ábyrgð. Þeir fá gjafasett frá fyrirtækinu og fá aðgang að vörunum til að prófa áður en þær fara á markað sem og möguleika á að kaupa þær á lægra verði en á markaði.

Elín segir að níu ár séu liðin frá því að Guðrún Marteinsdóttir, prófessor í fiskifræði, byrjaði að þróa húðvörurnar. Byrjað verði að markaðssetja þær hér heima „Við byrjum með hefðbundnum hætti inn í þessum meginverslunum; Hagkaup og völdum apótekum og Fríhöfninni. Svo verðum við með vefverslun fyrir þá sem eru ekki á þessu svæði,“ segir Elín. Síðan sé stefnt á markaðssetningu í öðrum löndum.

„Ísland er markaður fyrir prófun og við þurfum að læra og besta okkar framleiðslu, sölu og þróunarferli núna í þessum fasa. Við verðum að byrja að læra að ganga áður en við förum að hlaupa. En það eru aðilar erlendis sem eru að sýna þessu mikinn áhuga,“ segir Elín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×