Ætlar ekki að fara á vasapeninga Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 15. október 2015 07:00 Guðrún Einarsdóttir á herbergi sínu á Hrafnistu. Um næstu mánaðamót verður hún sett á vasapeninga. Hún ítrekar að vasapeningar ellilífeyrisþega eru mannréttindabrot og hefur beðið um fund aðstoðarmanns Eyglóar Harðardóttur, Matthíasar Imsland. vísir/gva „
Ég ætla ekki að fara á vasapeninga, það er mannréttindabrot,“ segir Guðrún Einarsdóttir ellilífeyrisþegi. Guðrún hefur barist fyrir afnámi vasapeningakerfisins og hærri ellilífeyri síðustu ár. Hún var sett á vasapeninga í vor eftir að hafa þurft að leita sér hjúkrunar vegna langvinnra veikinda. Hún mótmælti því harðlega og fór á fund aðstoðarmanns ráðherra. Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra, lýsti því yfir í júní að hún vildi afnema vasapeningakerfi. Í dag dvelur Guðrún á Hrafnistu og um næstu mánaðamót á hún að fara á vasapeninga til frambúðar. Hún er ósátt við að þingmenn og ráðherrar geri vel við sig á meðan ellilífeyrisþegar lifa undir fátæktarmörkum. Hún nefnir sérstaklega að þrjátíu milljónir hafi farið í dagpeninga þingmanna á þessu kjörtímabili.Guðrún segir ekki hægt að lifa af vasapeningum sem íbúum á hjúkrunarheimilum eru úthlutaðir.vísir/gva„Á meðan þeir þiggja tugi milljóna í dagpeninga í reisum sínum þá fá aldraðir lítið sem ekkert. Ég gef lítið fyrir þá hækkun sem boðuð er á ellilífeyri á meðan réttur fjölda aldraðra er brotinn með því að skikka þá á vasapeninga. Þá eiga aldraðir jafnt sem aðrir rétt á því að vera á lágmarkslaunum, það dugar ekkert minna en þrjú hundruð þúsund krónur. Af minni upphæð er ekki hægt að lifa.“ Í nokkur ár hefur staðið til að endurskoða frá grunni fyrirkomulag greiðslna einstaklinga sem búa á hjúkrunarheimilum og afnema þar með svonefnt vasapeningakerfi. Um áramótin 2016/2017 fer af stað tilraunaverkefni velferðarráðuneytis á nokkrum hjúkrunarheimilum þar sem vasapeningar verða afnumdir.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira