Tveir menn grunaðir um aðild að Lockerbie árásinni Samúel Karl Ólason skrifar 15. október 2015 23:41 Af þeim 270 sem létu lífið í árásinni dóu ellefu á jörðu niðri þegar brak féll á þorpið Lockerbie. Vísir/AFP
Saksóknarar í Skotlandi hafa borið kennsl á tvo menn frá Líbýu sem eru grunaðir um aðild að Lockerbie árásinni. Árið 1988 var flugvél frá Pan Am sprengd í loftinu yfir bænum Lockerbie í Skotlandi. 270 manns létu lífið í árásinni. Árið 2001 var leyniþjónustumaður frá Líbýu, Abdelbaset Ali Mohmed Al Megrahi, dæmdur í fangelsi fyrir aðild sína að árásinni en grunur leikur á að mennirnir tveir hafi einnig komið að árásinni. Megrahi lét lífið fyrir þremur árum, en hann var sá eini sem hefur verið dæmdur vegna árásarinnar. Yfirvöld í Skotlandi og Bandaríkjunum vinna að málinu í sameinungu. Æðsti yfirmaður dómsmála í Skotlandi sendi í dag bréf til dómsmálaráðherra Líbýu í Tripoli og fór fram á aðstoð, samkvæmt AFP fréttaveitunni. Báðir mennirnir hafa verið nafngreindir, en annar þeirra er einnig fyrrverandi meðlimur í leyniþjónustu Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbýu sem velt var úr sessi árið 2011. Hann er í haldi núverandi yfirvalda landsins og hefur verið dæmdur til dauða. Hinn maðurinn er sprengjusérfræðingur sem einnig er í haldi þarlendra yfirvalda. Fjölskyldur fórnarlamba árásarinnar hafa tekið þessum fregnum fagnandi. Stjórnvöld Gaddafi viðurkenndu ábyrgð Líbýu á árásinni árið 2003 og greiddu 2,7 milljarða dala bætur til fjölskyldna hinna látnu.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira