Kannabisverksmiðja á Spáni: Íslendingarnir handteknir í janúar og febrúar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. október 2015 11:43 Mynd sem tekin var í verksmiðjunni. mynd/spænska þjóðvarnarliðið
Íslendingarnir þrír sem handteknir voru í aðgerðum spænska þjóðvarnarliðsins vegna háþróaðrar kannabisverksmiðju í Molina de Segura eru ekki taldir höfuðpaurar glæpasamtaka sem standa að baki verksmiðjunni. Þjóðvarnarliðið telur Íslendingana þó nátengda samtökunum þar sem tveir þeirra hafi séð um að flytja efnin úr landi en einn 58 ára gamall Íslendingur er talinn hafa leigt húsnæðið þar sem verksmiðjan var. Samkvæmt upplýsingafulltrúa þjóðvarnarliðsins voru tveir Íslendinganna handteknir í janúar á þessu ári þegar þeir voru á leiðinni frá Spáni á bíl. Í febrúar var svo þriðji Íslendingurinn, leigjandi verksmiðjunnar, handtekinn á flugvellinum í Alicante á leiðinni til Íslands.Rannsókn nýlokið Að sögn upplýsingafulltrúans eru Hollendingarnir sjö sem handteknir voru í tengslum við málið taldir vera þeir sem stýra glæpasamtökunum. Í því hafi meðal annars falist að stýra framleiðslunni í verksmiðjunni og skipuleggja flutning á fíkniefnunum frá Spáni til Hollands. Rannsókn á málinu er nýlokið en fyrst var greint frá málinu í spænskum fjölmiðlum fyrir viku. Spænska þjóðvarnarliðið vildi hvorki gefa upp nöfn Íslendinganna né hvort að þeir væru í gæsluvarðhaldi eða hefði verið sleppt.Rafmagnsnotkun kom upp um starfsemina Kannabisverksmiðjan er metin á um eina milljón evra, eða rúmlega 140 milljónir króna. Í henni fundust hátt í sex þúsund kannabisplöntur sem flytja átti til Hollands. Í verksmiðjunni mátti finna mikið af tækjabúnaði; kælikerfi, ljósum og vökvunartækjum, og komu tæknifræðingar og landbúnaðarsérfræðingar að hönnun hennar. Lögregla telur að um fjársterkan og skipulagðan fíkniefnahring sé að ræða. Gróðurhúsið var í iðnaðarhverfi í útjaðri Molina de Segura, norðan við Murcia. Lögregla komst á snoðir um verksmiðjuna eftir að kvartanir tóku að berast um óreglu og truflanir á rafmagni frá nærliggjandi fyrirtækjum. Í ljós kom að glæpasamtökin höfðu sótt sér rafmagnið með ólöglegum hætti.
Tengdar fréttir Fíkniefnaverksmiðjan sú háþróaðasta í Evrópu Landbúnaðarsérfræðingar og tæknifræðingar komu að hönnun verksmiðjunnar, sem metin er á um 140 milljónir króna. 11. október 2015 21:12 Íslendingar gripnir í fíkniefnarassíu á Spáni Lögregla á Spáni handtók ellefu manns í tengslum við umfangsmikla kannabisræktun í bænum Molina de Segura. Hollendingar og Íslendingar stóðu að ræktuninni. Mánaðarlegt söluandvirði er sagt nema um 30 milljörðum króna. 12. október 2015 07:00 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira
Fíkniefnaverksmiðjan sú háþróaðasta í Evrópu Landbúnaðarsérfræðingar og tæknifræðingar komu að hönnun verksmiðjunnar, sem metin er á um 140 milljónir króna. 11. október 2015 21:12
Íslendingar gripnir í fíkniefnarassíu á Spáni Lögregla á Spáni handtók ellefu manns í tengslum við umfangsmikla kannabisræktun í bænum Molina de Segura. Hollendingar og Íslendingar stóðu að ræktuninni. Mánaðarlegt söluandvirði er sagt nema um 30 milljörðum króna. 12. október 2015 07:00